Aðalvalmynd
Dagskrá
06.02.2012 20:00 -
21:00
Fundur í Kristniboðsfélagi karla
07.02.2012 19:30 -
21:30
Sakkeus - kvikmyndasýning
08.02.2012 20:00 -
21:00
SÍK samkoma
09.02.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
15.02.2012 20:00 -
21:00
SÍK samkoma
Kristniboðspósturinn
53. póstur, 15. apríl 2009
Ágætu viðtakendur. Hér eru nokkrir fréttamolar. Við reynum að senda þetta út með nýjum hætti og vonum að þið fáið þetta öll og aðeins í einriti.
Löngumýrarmót 17.-19. júlí
Árlegt kristniboðsmót að Löngumýri í Skagafirði verður í ár helgina 17.-19. júlí. Vekjum við athygli á þessu fyrir þau ykkar sem eruð að skipuleggja sumarið og viljið vera með á mótinu. Meðal ræðumanna verður séra Helgi Hróbjartsson kristniboði. Nánari upplýsingar síðar.
Prestavígsla í Pókot
Sunnudaginn 29. apríl voru 13 prestar vígðir til starfa í Norðvestur biskupsdæmi lúthersku kirkjunnar í Keníu. Var það mikil hátíðarstund. Biskups Íslands sendi kveðju og gaf klæðnað prestanna. Þar með verður mun auðveldara að veita söfnuðunum þá þjónustu sem þeir eru í þörf fyrir. Dagurinn var afar hátíðlegur eins og sjá má á skrifum Auðar Daníelsdóttur og Jakobs Á. Hjálmarssonar á www.jakob.annall.is.
Samkomur í Kristniboðssalnum á miðvikudögum kl. 20
15. apríl
Fyrirætlanir til heilla. Ræðumaður: Skúli Svavarsson. Frjálsir vitnisburðir. 22. apríl
Samkoma helguð starfi Sat 7. Gestur okkar verður Kurt Johansen sem einnig hefur hugleiðingu kvöldsins.
Salt kristið samfélag er í samstarfi með aðra með samkomur í Grensáskirkju á föstudag kl. 20:30, laugardag kl. 20.30 og sunnudag kl. 17:00. Ræðumaður verður Roland Werner frá Þýskalandi. Ytri umgjörð samkomanna miðast við ungt fólk en allir eru velkomnir.
Heitt úti og heitt í ísskápnum
Helga Vilborg og Kristján Þór eru ásamt börnum sínum og Sigríði Ingólfsdóttur sjálfboðaliða í Voító. Þau lentu í umferðaróhappi fyrir nokkru þar sem kona hljóp fyrir bílinn á leið þeirra. Hún slasaðist þó ekki alvarlega sem betur fer. Heima í Voító hefur verið heitt og ísskápurinn sem þau fengu í stað hins sem gaf sig ekki kælt mikið. Vonir standa til að úr því verði vonbráðar bætt með þriðja skápnum en nýir ísskápar sem ganga fyrir gasi eða steinolíu fást ekki í landinu. Allt gott er annars að frétta af starfinu.
Andlátsfregn
Hilmar Þórhallsson, sem var gjaldkeri SÍK í 32 ár, frá 1953-1985, lést aðfaranótt föstudagsins langa. Við vottum aðstandendum samúðar og biðjum Drottin um að blessa minningu Hilmars.
Bjarmi á leiðinni
Fyrsta tölublað Bjarma er komið út og ætti að berast áskrifendum á morgun. Blaðið er einkum helgað hjónabandinu og fjármunum, eignum og fjárhagsþrengingum. Í blaðinu er einnig fleira að finna.
Basarinn
Basarinn gengur vel en ef einhverjir sjálfboðaliðar hafa aflögu stundir til að vera hér í afgreiðslu væri það mjög vel þegið. Ekki þarf að binda sig til framtíðar. Eins minnum við á að við tökum við munum nú þegar vorhreingerningar og tiltektir standa yfir hjá mörgum. Afgreiðslutíminn er kl. 12-17 út apríl, frá 1. maí og út ágúst verður opið kl. 10-16.
Norrænn samstarfsfundur
Frá sunnudagskvöldi fram á þriðjudag verður fundur forsvarsfólks kristniboðsfélaga og kristniboðsdeilda lúthersku kirknanna á Norðurlöndum haldinn hér á landi. Eru þetta árlegir fundir sem undirritaður hefur sótt á liðnum árum. Til umræðu eru ýmis mál sem snerta kristniboðsstarfið, fréttamiðlun manna á milli og fleira.
Bænaganga á sumardaginn fyrsta
Á sumardaginn fyrsta standa ýmsar kirkjur og kristin samtök fyrir bænagöngu þar sem gengnir verða nokkrir leggir kringum borgina og eins úti á landi. Við hvetjum fólk til að taka þátt í göngunni og biðja fyrir landi og þjóð. Nánari upplýsingar verða á vef Lindarinnar þegar nær dregur.
Brosið: Við Gullna hliðið
Þrír vinir komu að Gullna hliðinu á sama tíma. Hluti af kynningu Lykla-Péturs fól í sér að hann spurði hvers konar athugasemdir þeir vildu helst heyra frá fjölskyldu og vinum í jarðarförinni.
„Ég vildi helst heyra þau segja að ég hafi verið frábær læknir og góður fjölskyldumaður,“ sagði sá fyrsti.
„Ég vildi heyra þau segja hversu góður eiginmaður ég var og að í starfi mínu sem kennari hafi ég haft mikla þýðingu fyrir marga,“ bætti annar í röðinni við.
„Þetta er frábært hjá ykkur báðum,“ sagði sá þriðji, „en mig langar helst til að þau segi: „Sjáið þið, hann hreyfir sig!“ “
Bænarefnin
- Karl Jónas og Ragnheiður í Ómó Rate, Eþíópíu.
- Helga Vilborg, Kristján og börnin: Margrét Helga, Jóel, Dagbjartur Elí og Davíð Ómar í Voító, Eþíópíu.
- Sigríður Ingólfsdóttir sjálfboðaliði í Eþíópíu og Jakob Á. Hjálmarsson sjálfboðaliði í Keníu.
- Fjölnir og Fanney á kristniboðaskólanum í Ósló og drengirnir þeirra: Daníel, Markús, Salómon og Davíð Pálmi.
- Starfsfólkið hér, fast og laust, í fullu og hlutastarfi: Agnes, Hermann Ingi, Kristín, Ragnar og Ragnheiður
Drottinn Guð, varðveit ætíð líkams og sálarheill barna þinna. Frelsa oss frá áhyggjum og sorgum yfirstandandi lífs fyrir mátt upprisunnar, og veit oss gleðina eilífu fyrir hinn upprisna son þinn, Jesú Krist Drottin vorn. (Bæn dagsins á www.tru.is)
Með kærum kveðjum og blessunaróskum
Ragnar Gunnarsson framkvæmdastjóri