Aðalvalmynd
Dagskrá
06.02.2012 20:00 -
21:00
Fundur í Kristniboðsfélagi karla
07.02.2012 19:30 -
21:30
Sakkeus - kvikmyndasýning
08.02.2012 20:00 -
21:00
SÍK samkoma
09.02.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
15.02.2012 20:00 -
21:00
SÍK samkoma
Kristniboðspósturinn
45. póstur, 18. nóvember
2008 Kristniboðsdagurinn
Kristniboðsins var víða minnst í kirkjum landsins á kristniboðsdaginn. Fjölmennast var í Hallgrímskirkju, um 600 manns, í guðsþjónustu þar sem Guðlaugur Gunnarsson kristniboði og gjaldkeri Kristniboðssambandsins prédikaði. Útvarpsguðsþjónusta var frá Dómkirkjunni þar sem sr. Jakob Á. Hjálmarsson prédikaði. Skúli Svavarsson kristniboði tók þátt í guðsþjónustu og samkomu á Akureyri og aðrir kristniboðar víðar um land. Samskot voru víða tekin en heildaryfirlit yfir þau er ekki enn tilbúið.
Basar Kristniboðsfélags kvenna í Reykjavík
Árlegur jólabasar félagsins verður í Kristniboðssalnum laugardaginn 22. nóvember kl. 14-17. Þar verður að vanda ýmislegt á boðstólunum, handunnir munir og gjafavara, jólaskraut, happdrætti, kaffi, kakó og vöfflur til sölu, jólakortin okkar og margt annað.
Kokk vantar til Noregs!
Samstarfshreyfing okkar í Noregi rekur m.a kristilega framhaldsskólann Sygna sem er í Balestrand, í Vestur-Noregi. Skólinn er að leita að kristnum kokki sem annað hvort er lærður eða með reynslu. Ef þið vitið um einhvern sem er að hugsa sér til hreyfings og þetta á við um má hafa samband við undirritaðan eða beint við Torbjørn Brosvik sem upplýsir um launakjör, vinnutíma, vaktir og slíkt, admleiar@sygna.vgs.no . Skólinn mun hjálpa fólki við að útvega húsnæði. Þó nokkuð er um Íslendinga í byggðarlaginu. Nánari upplýsingar um skólann eru á www.sygna.vgs.no.
Jól í Ameríku - Styrktartónleikar 5. desember Styrktartónleikar verða fyrir kristniboðið föstudaginn 5. desember kl. 20 í Grafarvogskirkju. Þemað verður Jól í Ameríku. Á tónleikunum koma fram hinir ýmsu kórar, fullorðins- og unglinga- þar á meðal Samkór Reykjavíkur og kór Landsvirkjunar, Matti Sax og bandið hans, Hjörleifur Valsson, fiðlusnillingur ásamt öðru þekktu tónlistarfólki. Á efnisskránni er fjöldi þekktra, amerískra jólalaga í ýmist jazz- eða klassískri útsetningu. Eitthvað fyrir alla. Takið endilega frá þetta kvöld og sendið auglýsingu á vini og vandamenn. Miðaverð er aðeins 2.000 krónur og stemmingin verður frábær. Enginn verður fyrir vonbrigðum.
Jólakort kristniboðsins
Kristniboðssambandið selur jólakort nú fyrir jólin sem endranær. Tvær nýjar gerðir eru til sölu, báðar með mynd af kertum en mismunandi stærðir. Við eigum einnig til eldri kort og sum þeirra á mjög hagstæðu verði. Hafið samband eða komið í heimsókn á Grensásveg 7, síminn er 533 4900. Við verðum einnig með sölubás í Kringlunni frá 11. desember og fram að jólum.
Frá Eþíópíu
Lítið hefur heyrst frá kristniboðunum í Eþíópíu undanfarið enda símasamband verið lítið eða lélegt. Að sögn Skúla Svavarssonar sem heimsótti landið og kristniboðana fyrir nokkru var allt gott að frétta og í nógu að snúast. Karl Jónas og Ragnheiður eru væntanleg til landsins í lok nóvember og verða hér í tvo mánuði í orlofi og vinnu. Þau eru tilbúin til að heimsækja kristniboðshópa og gott að fá beiðnir um það hingað til mín. Því má bæta við að Fanney og Fjölnir sem stunda nám við kristniboðskólann Fjellhaug í Ósló biðja kærlega að heilsa kristniboðsvinum og þakka fyrirbænirnar.
Bókin komin: Dauðinn, sorgin og vonin
Bókin kom úr prentsmiðju á fimmtudag og hefur verið dreift í helstu bókaverslanir og er að sjálfsögðu til sölu hér hjá okkur.
Samkomur í Kristniboðssalnum, miðvikudaga kl. 20
19. nóvember
Dregnir til ábyrgðar, Jer. 14. Kjartan Jónsson héraðsprestur talar
Endurfundir í Keníu – Kjartan segir frá.
26. nóvember
Varist villukenningar. 1. Tím 3. Ragnar Gunnarsson talar.
Fyrirspurnir úr sal.
Salt kristið samfélag er með samkomur í Kristniboðssalnum á sunnudögum kl. 17.
Brosið: Brandaraglaður prestur
Prestur nokkur utan af landi kom til borgarinnar þar sem hann var beðinn um að ávarpa árshátíðargesti fjölmenns fyrirtækis. Sagði hann m.a. nokkra brandara. En þar sem hann ætlaði að nota þá aftur á fundi tveim dögum seinna bað hann um að ekki yrði vísað í þá í fréttum af árshátíðinni.Í fréttum af fólki og viðburðum helgarinnar mátti síðan lesa í einu dagblaðanna: „Presturinn sagði margar skemmtilegar sögur sem því miður er ekki hægt að birta.“
- Jólatónleikarnir 5. desember
- Fjármál Kristniboðssambandsins – þó svo útlitið sé ekki svart í ár vegna sérstakra gjafa er ljóst að erfitt verður að standa við skuldbindingar okkar á næsta ári
- Fólkið okkar í Eþíópíu: Karl Jónas og Ragnheiður, Sigríður, Helga Vilborg og Kristján, börnin Margrét Helga, Jóel, Dagbjartur Elí og Davíð Ómar.
- Fólkið á Fjellhaug: Fanney og Fjölnir, strákarnir Daníel, Markús, Salómon og Davíð Pálmi, Sveinn Einar og Sakarías og fjölskyldur þeirra, Níu og Oddi.
- Að bækurnar Fimm táknmál ástarinnar og Dauðinn, sorgin og vonin verði mörgum til blessunar.
Til umhugsunar
Drottinn sýnir þeim trúnað sem óttast hann
og gerir þeim sáttmála sinn kunnan.
Ég beini augum sífellt til Drottins
því að hann leysir fætur mína úr snörunni.
Snú þér til mín og ver mér náðugur
því að ég er einmana og beygður.
Frelsa mig frá kvíða hjarta míns,
leið mig úr nauðum.
Lít á neyð mína og eymd
og fyrirgef allar syndir mínar.
Varðveit líf mitt og frelsa mig,
lát mig ekki verða til skammar
því að hjá þér leita ég hælis.
Heilindi og ráðvendni verndi mig
því að á þig vona ég.
Úr Sálmi 25
Með kærum kveðjum og blessunaróskum
Ragnar Gunnarsson framkvæmdastjóri