Aðalvalmynd
Dagskrá
06.02.2012 20:00 -
21:00
Fundur í Kristniboðsfélagi karla
07.02.2012 19:30 -
21:30
Sakkeus - kvikmyndasýning
08.02.2012 20:00 -
21:00
SÍK samkoma
09.02.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
15.02.2012 20:00 -
21:00
SÍK samkoma
Kristniboðspósturinn
44. póstur, 7. nóvember 2008
Kristniboðsdagurinn
Kristniboðsdagurinn er nú á sunnudag, 9. nóvember. Biskup hvetur til þess að kristniboðsins sé sérstaklega minnst í guðsþjónustum um land allt og samskot tekin til starfsins. Útvarpsguðsþjónusta dagsins er frá Dómkirkjunni í Reykjavík. Þar mun séra Jakob Ágúst Hjálmarsson prédika en hann starfar sem sjálfboðaliði við kennslu prestsnema og prédikara í Keníu þrjá mánuði á ári. Kristniboðar taka einnig þátt í guðsþjónustum á höfuðborgarsvæðinu, Norðurlandi og Austurlandi. Sérstök hátíðarsamkoma verður síðan á vegum Salts kristins samfélags í Kristniboðssalnum, Miðbæ við Háaleitisbraut kl. 17.Þar mun sr. Kjartan Jónsson segja frá ferð sinni og sex annarra presta í haust og Haraldur Jóhannsson, formaður stjórnar Kristniboðssambandsins, tala. Einnig verður á sama tíma samkoma í félagsheimili KFUM og KFUK, Sunnuhlíð á Akureyri. Þar mun Skúli Svavarsson kristniboði tala og segja frá starfinu en hann er nýkominn heim úr mánaðarlangri ferð til Eþíópíu og Keníu. Einnig Það er von okkar að dagurinn verði til að lyfta fram málefni kristniboðsins með hvatningu um að biðja fyrir því og leggja því lið.
Kristniboðsalmanakið
Kristniboðsalmanakið 2009 er nú komið út. Stærð og umbrot er svipað og í fyrra en pappír aðeins mattari. Almanakinu verður dreift í kirkjum landsins á og kringum kristniboðsdaginn. Eins má nálgast það hér hjá okkur á Grensásvegi 7. Áform eru uppi um að senda það einnig út með Kristniboðsfréttum í desember. Upplag almanaksins er 10.000 eintök.
Mikið að gera á Basarnum
Í síðustu viku var tilboðsvika á Basarnum, nytjamarkaðinum okkar að Grensásvegi 7. 20% afsláttur var á öllum vörum. Við auglýstum okkur og margir lögðu leið sína til okkar og seldum fyrir rúmlega 300 þúsund. Clara Waage hefur verið dugleg að hjálpa okkur undanfarnar vikur og þökkum við henni sérstaklega fyrir það.
Uppveðruð eftir heimsóknir til Eþíópíu og Keníu
Kjellrun Langdal og Skúli Svavarsson heimsóttu ásamt ferðahópi Eþíópíu í rúmar tvær vikur í október og fóru svo yfir til Keníu og heimsóttu vini og starfsakurinn í Pókot. Ferðin var hin gleðilegasta og hafði Skúli orð á því hve ávöxturinn af starfinu væri gríðarlegur, hann hefði komið sér á óvart. Við fáum meira að sjá frá Skúla í Kristniboðsfréttum, á samverum og annars staðar á næstu vikum en þau hjónin verða á Akureyri um helgina. Við fáum að heyra frá ferðahópnum til Eþíópíu á samkomu á miðvikudag. Frásaga Bolla Péturs Bollasonar um ferð prestanna sjö til Keníu í haust má lesa hér.
Styrktartónleikar 5. desember: Jól í Ameríku
Styrktartónleikar verða fyrir kristniboðið föstudaginn 5. desember kl. 20 í Grafarvogskirkju. Þemað verður Jól í Ameríku. Á tónleikunum koma fram hinir ýmsu kórar, fullorðins- og unglinga-, Matti Sax og bandið hans, Hjörleifur Valsson, fiðlusnillingur ásamt öðru þekktu tónlistarfólki. Á efnisskránni er fjöldi þekktra, amerískra jólalaga í ýmist jazz- eða klassískri útsetningu. Eitthvað fyrir alla. Takið endilega frá þetta kvöld og sendið auglýsingu á vini og vandamenn. Miðaverð er aðeins 2.000 krónur og stemmingin verður frábær. Enginn verður fyrir vonbrigðum.
Maraþonið
Starfsmenn Glitnis, viðskiptavinir og aðrir þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis hlupu til góðs og söfnuðu áheitum að upphæð 86.500 sem þeir ánöfnuðu Kristniboðssambandinu. Við þökkum ykkur sem hlupuð og hétuð á hlauparana.
Nýr kristniboðshópur á netinu
Ásta Bryndís Schram hefur haft forgöngu um stofnun áhugamannahóps um kristniboð á netinu á síðum Facebook. Rúmlega 80 manns eru í þessum hópi. Annar hópur fyrrum KRUNG-fara er einnig á netinu og telur nú 36 manns. Við fögnum þessum nýstárlegu kristniboðshópum.
Ný bók að koma út:
Dauðinn, sorgin og vonin eftir Flemming Kofod-Svendsen
Bókin er væntanleg í vikulokin. Í henni segir höfundur frá glímu sinni við Guð, spurningunum sem vöknuðu um kærleika og alvald Guðs, efanum, baráttunni – og ekki síst von þeirri sem hann á í trúnni á frelsara sinn. Grípandi og mjög góð bók handa öllum sem hafa misst, syrgt og glíma við sömu spurningar. Bókin mun kosta 3.290 en verður hjá okkur á kr. 2.900.
Samkomur í Kristniboðssalnum, miðvikudaga kl. 20
12. nóvember
Vertu góð fyrirmynd, 2. Þess 3.6nn. Jónas Þ. Þórisson framkvæmdastjóri talar
Frásaga ferðahóps sem fór til Eþíópíu
19. nóvember
Dregnir til ábyrgðar, Jer. 14. Kjartan Jónsson héraðsprestur talarEndurfundir í Keníu – Kjartan segir frá. Salt kristið samfélag er með samkomur í Kristniboðssalnum á sunnudögum kl. 17.
Brosið: Gott sæti
Gömul koma gekk inn í gömlu kirkjuna í þorpinu og fékk hjálp frá ungum sjálfboðaliða sem var meðhjálpari þann daginn. „Hvar viltu helst sitja?“ – spurði meðhjálparinn. „Á fremsta bekk, takk fyrir,“ svaraði konan.„Þú þarft nú þess ekki,“ sagði meðhjálparinn, „presturinn er, skal ég segja þér, frekar þreytandi.“„Veistu nokkuð hver ég er?“ spurði konan.„Nei,“ svaraði meðhjálparinn.„Ég er móðir prestsins,“ svaraði konan. „En veistu hver ég er?“ spurði meðhjálparinn.„Nei,“ svaraði konan. „Jæja, það er gott,“ sagði meðhjálparinn og gekk burt.
Nokkur bænarefni
- Kristniboðsdagurinn og guðsþjónustur dagsins
- Katsko og Leifur Sigurðsson sem eru í Japan og fjölskyldur þeirra
- Sjónvarps- og útvarpssendingar til Mið-Austurlanda, Norður-Afríku og Kína.
- Að bækurnar Fimm táknmál ástarinnar og Dauðinn, sorgin og vonin verði mörgum til blessunar.
Það gerist sjaldan neitt sérstakt þegar ég les í Biblíunni. En stundum er eins og ég sé í bíó þar sem myndin er í þrívídd. Allt í einu er eins og Jesús sé staddur á miðju gólfi í herberginu og vilji tala við mig. Við erum staddir í hringiðu atburðanna. Orðið verður lifandi. Og ég finn skyndilega að þetta er ekki nein venjuleg bók heldur orð Guðs. Þetta er ekki einhver ósköp venjuleg bók frá Guði til manna heldur einkabréf Guðs til mín.
Knut Tveitereid, Fimm mínútna Biblían, bls. 315.
Með kærum kveðjum og blessunaróskumRagnar Gunnarsson framkvæmdastjóri