Dagskrá

06.02.2012 20:00 - 21:00
Fundur í Kristniboðsfélagi karla

07.02.2012 19:30 - 21:30
Sakkeus - kvikmyndasýning

08.02.2012 20:00 - 21:00
SÍK samkoma

09.02.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

15.02.2012 20:00 - 21:00
SÍK samkoma


Heim
Newsletter Item
CM_EDITION_OF
Kristniboðspósturinn 24. október 2008

Kristniboðspósturinn

43. póstur, 24. október 2008

Góð gjöf til kristniboðsins
Sigríður Sumarliðadóttir gaf í vikunni 5 milljón króna gjöf til kristniboðsins til minningar um foreldra sína, þau Sigríði Guðmundsdóttur Thorgrimsson og Sumarliða Halldórsson sem bæði báru hag kristniboðsins mikið fyrir brjósti. Við þökkum þessa höfðinglegu gjöf sem er bænasvar á réttum tíma. Fjárhagsáætlunin var í upphafi árs helst til djörf og auk þess hefur breyting á gengi íslensku krónunnar komið illa við okkur eins og marga og þýðir hærri útgjöld.  Við biðjum Guð um að blessa glaðan gjafara og minningu Sigríðar og Sumarliða.  

Kristniboðsdagurinn
Kristniboðsdagurinn verður eins og venja er annan sunndag í nóvember, þann 9. Útvarpsguðsþjónusta verður frá Dómkirkjunni þar sem séra Jakob Ágúst Hjálmarsson prédikar. Starfsmenn og kristniboðar verða víða þátttakendur í guðsþjónustum bæði í Reykjavík og úti á landi. Prestar eru hvattir til að minna á kristniboðið og taka samskot til þess þann dag.   

Jólatónleikar til styrktar kristniboðinu
Keith Reed hefur haft forgöngu um styrktartónleika fyrir kristniboðið. Þeir verða haldnir föstudagskvöldið 5. desember kl. 20 í Grafarvogskirkju. Fram munu koma kórar og einsöngvarar og ef lesendur póstsins hafa tengsl við einhverja sem tilbúnir væru til að taka þátt með söng sínum væri gott að hafa samband við undirritaðan.   

Tilboðsvika á Basarnum
Næsta vika verður tilboðsvika hér hjá okkur á nytjamarkaðinum og reyndar 20% afsláttur af öllu sem við seljum, nýju og notuðu. Þar á meðal eru bækur Salts ehf, erlendar kristilegar bækur, mannakorn, Kanga-diskurinn og eins bækur frá öðrum sem við seljum. Nú er tækifæri til að gera góð kaup og kaupa jólagjafir á góðu verði. Við erum einnig farin að taka fram jólavörur og jólakort.

Einn tilgangur með þessari viku er að vekja athygli á markaðinum okkar en smám saman er fólk að uppgötva okkur. Auglýsingar munu birtast á nokkrum stöðum af þessu tilefni.

Þið sem eruð úti á landi getið hringt og pantað í síma 533 4900.

Samkomur í Kristniboðssalnum, miðvikudaga kl. 20
29. október
Mikilvægi fyrirbænar, 2. Þess. 3.  Haraldur Jóhannsson talarBænastund
5. nóvember  
Dæmisaga um línbelti, Jer. 13. Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson talarVitnisburðir  Salt kristið samfélag er með samkomur í Kristniboðssalnum á sunnudögum kl. 17.  

Brosið: Heiðarleiki
Stærðfræðikennarinn spurði Pétur: Ef þú ert með 800 krónur í hægri vasanum á buxunum og 700 í vinstri vasanum, hvað ertu þá með?Pétur: Þá er ég alla vega ekki í buxunum mínum.   
 

Nokkur bænarefni

  • Framtíð íslensku þjóðarinnar, fjármál og ráðamenn.  Náð og miskunn, auðmýkt og andi fyrirgefningar. Þjóðin snúi sér til Drottins.  
  • Kirkjan í Keníu, biskupinn í Pókot, William Lopeta og aðrir í forsvari kirkjunnar.
  • Sjónvarps- og útvarpssendingar til Mið-Austurlanda, Norður-Afríku og Kína.
  • Kristniboðsdagurinn 9. nóvember.
Til umhugsunar

Hinn hörmulegi missir minn kenndi mér hve mikill styrkur felst í því að velja – að ganga inn í myrkrið og raunverulega að finna og reyna sorgina og sársaukann og svo um leið að reyna að halda áfram að lifa eðlilegu lífi, en laga sig að nýjum aðstæðum. Ég reyndi að samþætta sársauka minn og líf mitt til að lina sársaukann. Ég vildi ekki að þessi harmleikur skapaði biturleika í mér og yki þjáningu mína. Ég hafði á tilfinningunni að ef ég flýði sársaukann ætti ég enn stærri sársauka á hættu. Ég vildi einnig eyða þeirri tilfinningu að Guð hefði svikið mig og mæta honum í nýju trausti. Ég held að með því að velja að ganga inn í sársaukann hafi ég tekið fyrsta skrefið til nýrrar sólaruppkomu.

Flemming Kofod Svendsen: Dauðinn, sorgin og vonin(Væntanleg um miðjan nóvember).  

Með kærum kveðjum og blessunaróskum
Ragnar Gunnarsson framkvæmdastjóri



sik.is

Ýmislegt efni

Tengdar síður

Samstarfsaðilar


Kristniboðssambandið | Háaleitisbraut 58-60 | 108 Reykjavík | Sími: 533 4900 | Netfang: sik@sik.is
© Kristniboðssambandið 2011