Kristniboðspósturinn 109. póstur 23. janúar 2012
Gott nýtt ár
Guð gefi ykkur öllum gott og farsælt nýtt ár. Kærar þakkir fyrir bæði fyrirbænir og stuðning við kristniboðið á árinu sem er liðið.
Sölubás í Kringlunni
Kristniboðssambandið hefur verið með sölubás í Kringlunni í desember frá því að verslunarmiðstöðin opnaði. Í ár seldum við jólakort og friðarljós þar fyrir rúmlega 1,1 milljón krónur. Það er heldur minna en í fyrra. Bestu þakkir til allra sjálfboðaliðanna sem stóðu vaktina í Kringlunni. Það munar um þær tekjur sem salan þar skilar einnig er vera okkar í Kringlunni góð kynning á starfi okkar.
Ragnar og Hrönn í Keníu
Ragnar Gunnarsson framkvæmdastjóri Kristniboðssambandsins og Sigríður Hrönn Sigurðardóttir fóru til Keníu þann 26. desember og verða þar þangað til 10. febrúar við kennslu á fræðslumiðstöð Lúthersku kirkjunnar í Kapengúría.
Frímerki og mynt
Á sl. ári voru tekjur af frímerkja og myntsölu rúmar þrjár milljónir króna. Við minnum fólk á að við tökum með þakklæti á móti notuðum frímerkjum. Hér á við að margt smátt gerir eitt stórt.
Látið skóna ganga aftur.
Í vikunni var gengið frá sendingu fyrsta gámsins með notuðum skóm. Minnum fólk á að koma notuðum skóm í gám kristniboðsins á móttökustöðum Sorpu. Gámarnir eru merktir með „Látið skóna ganga aftur.“
Keníuferð
Þátttaka í Keníuferð unga fólksins í júlí/ágúst hefur verið minni en gert var ráð fyrir. Við viljum því bjóða fólki á öllum aldri að gerast þátttakendur í ferðinni. Farið verður í þjóðgarð og skoðað dýralífið þar auk þess að sjá og taka þátt í kristniboðsstarfinu í Pókot. Þeir sem hafa áhuga á að vera með hafi samband við skrifstofu SIK fyrir 31. janúar (sími 5334900. tölvufang sik@sik.is).
Fjölskyldumót í Vatnaskógi
Kristniboðssambandið stendur fyrir fjölskyldumóti í Vatnaskógi dagana 3.-5. febrúar. Fólk á öllum aldri er hvatt til þess að koma og njóta uppbyggilegrar og góðrar helgar í fögru vetrar umhverfi. Dagskrána má lesa á netsíðu Kristniboðssambandsins (www.sik.is). Nánari upplýsingar og skráning er að fá á skrifstofu Kristniboðssambandsins.
Samkomur í Kristniboðssalnum
25. janúar. Ræðumaður: Karl Jónas Gíslason. Betsý Halldórsson segir frá dvöl sinni í Keníu sl. Haust.
1. febrúar. Ræðumaður Guðlaugur Gunnarsson. Hann mun einnig greina frá stöðu fjármála SÍK um sl. Áramót.
8. febrúar. Ræðumaður Kjartan Jónsson. Sagðar verða fréttir frá starfi SAT-7 sjónvarpsstöðvarinnar.
Kristniboðsvika í Reykjavík 4.-11. mars
Undirbúningur kristniboðsviku er hafinn. Við hvetjum fólk til þess að taka frá þessa daga og njóta samfélagsins á samkomunum. Við trúum því að samkomurnar verði blessunarríkar öllum þeim sem sækja þær. Biðjið fyrir undirbúningnum.
Eþíópíukvöld
Hið vinsæla Eþíópíukvöld Kristniboðsfélags kvenna verður 17. mars. Þið sem hafið áhuga á eþíópískum mat, takið frá daginn. Sala aðgöngumiða verður hjá konunum í Kristniboðsfélaginu og á skrifstofu SÍK, þegar nær dregur.
Kveðjur
Kærar kveðjur með orðunum í 1. Þess. 5:23-24.
„En sjálfur friðarins Guð helgi yður algerlega og andi yðar, sál og líkami varðveitist alheil og vammlaus við komu Drottins vors Jesú Krists. Trúr er sá er yður kallar, hann mun koma þessu til leiðar.“
Skúli Svavarsson
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
