Aðalvalmynd
Dagskrá
06.02.2012 20:00 -
21:00
Fundur í Kristniboðsfélagi karla
07.02.2012 19:30 -
21:30
Sakkeus - kvikmyndasýning
08.02.2012 20:00 -
21:00
SÍK samkoma
09.02.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
15.02.2012 20:00 -
21:00
SÍK samkoma
Kristniboðspósturinn
42. póstur, 10. október 2008
Einhverjir hafa átt í vandræðum með að lesa póstinn eftir að við fórum að senda hann beint frá vefsíðu okkar. Biðjumst við velvirðingar á því og vonum að málið leysist á næstunni.
Kaffisala á sunnudag
Árleg kaffisala Kristniboðsfélags karla í Reykjavík verður haldin nú á sunnudag, 12. október kl. 14-17 í Kristniboðssalnum, Miðbæ við Háaleitisbraut. Að venju verður kaffihlaðborð með kökum og brauðréttum, kaffi, te og gosdrykkir í boði. Kaffisalan er gott tækifæri til að bjóða ættingjum og vinum í kaffi og styrkja um leið kristniboðsstarfið.
Fatahreinsun Kópavogs og kristniboðið
Arnmundur Kr. Jónasson, sem rekur Fatahreinsun Kópavogs, bauð SÍK fyrr á árinu að vera með í verkefni fyrirtækisins þar sem viðskiptavinir geta ánefnt SÍK 20% afslátt af þjónustu þeirri sem keypt er. Afsláttarmiða má nálgast á afgreiðslu SÍK og Basarsins og í Kristniboðssalnum. Með því að versla við fyrirtækið má í leiðinni styrkja kristniboðið.
Fleiri frímerki?
Jarle Reiersen, sem sér um notuð frímerki sem gefin eru til SÍK, segir að vel hafi gengið undanfarið að koma frímerkjunum í verð. Oft kemur lítið af frímerkjum á haustin og því ástæða til að hvetja fólk til að minna ættingja, vini og starfsfélaga á að þetta er góður tími til að skila notuðum frímerkjum til SÍK.
Heimsóknir austur og norður
Baldur og Agnes munu heimsækja Hérað og Akureyri um helgina og segja frá starfi sínu á liðnum árum. Kristniboðsfélagið á Héraði hittist í kvöld og þau munu tala á samkomu KFUM og KFUK á Akureyri á sunnudagskvöld.
Sexmenningar í Eþíópíu
Kjellrun Langdal og Skúli Svavarsson héldu til Eþíópíu í gær ásamt fjórum öðrum og gekk ferðin þangað vel. Þau verða í landinu rúmar tvær vikur. Þá snúa ferðalangarnir heim en Skúli og Kjellrun halda til Keníu í 10 daga.
Ólgusjór fjármála
Undanfarnir dagar hafa falið í sér meiri breytingar og óvissu en við höfum átt að venjast hér á landi. Óvissan og samdráttur á mörgum sviðum mun eflaust snerta fjárhagsáætlun og starf SÍK á komandi mánuðum og árum. Óstöðugleiki íslensku krónunnar kemur sér illa fyrir Kristniboðssambandið eins og fleiri sem eru með skuldbindingar í erlendri mynt. Traust okkar er þó á Drottni, því verkið er hans og hann hefur falið okkur það. Erfitt er að sjá á þessari stundu fyrir sér hvað breyttir tímar hafa í för með sér. Við biðjum þess að hremmingar þær sem á þjóðinni lenda þessa dagana og vikurnar megi, þegar upp er staðið, verða henni til blessunar og til þess að þjóðin snúi sér í ríkari mæli til Drottins. Við biðjum einnig um náð og miskunn, auðmýkt og anda fyrirgefningar.
Krungferð í óvissu
Ætlunin hefur verið að bjóða upp á kynnisferð ungs fólks til Keníu á næsta ári. Vegna óvissunnar í efnahagsmálum þjóðarinnar munum við bíða einhverjar vikur með ákvörðun um hvort ferðin verður farin þá eða frestað þar til síðar. Skráningarfrestur framlengist og verður kynntur betur síðar ef af verður. Sama er að segja um staðfestingargjald.
Basarinn – opnunartími í vetur – góðar gjafir
Nytjamarkaðurinn okkar verður í vetur opinn sem hér segir: Mánudaga til föstudaga kl. 12-17 og fyrsta laugardag hvers mánaðar kl. 11-14 (þ.e. nú á laugardag næst). Margt forvitnilegt er á markaðnum en við minnum einnig að að við höfum góðar gjafavörur til sölu, t.d. sjöl, bindi og fleira frá Kína, sjöl, ilmolíur, silfurkrossa og fleira frá Eþíópíu og Keníu. Allt eru þetta góðar tækifæris- og jólagjafir. Dagana 27. október til 1. nóvember verður afsláttarvika á Basarnum, en allt sem við seljum verður þá daga með 20% afslætti. Á það einnig við um bækur Salts, aðrar bækur innlendar og erlendar, Afríkuhornið, vörurnar frá Kína, geisladiska og fleira. Við minnum einnig á að öll hjálp sjálfboðaliða á Basarnum er vel þegin.
Samkomur í Kristniboðssalnum, miðvikudaga kl. 20
15. október Frumgróði til hjálpræðis. 2. Þess. 2. Haraldur Jóhannsson talarFrásaga ferðahóps til Keníu.
22. október Hvers vegna njóta ranglátir velgengni? Jer. 12. Guðlaugur Gunnarsson talar. Um útgáfustarfsemi SÍK. Salt kristið samfélag er með samkomur í Kristniboðssalnum á sunnudögum kl. 17.
Brosið: Samlagning kærleikans?
Stærðfræðikennarinn spurði Gunnu: Ef þú átt sjö smákökur og gefur Danna fjórar, hvað áttu þá margar eftir?
Gunna: Sjö!
Kennarinn: Nú, af hverju?
Gunna: Ekki ætla ég að gefa Danna neinar smákökur!
Nokkur bænarefni
- Útgáfumálin: Bjarmi, Fimm táknmál ástarinnar, Dauðinn, sorgin, vonin.
- Starfsfólk SÍK og Salts á heimavelli: Ragnar, Skúli, Kristín, Agnes og Hermann Ingi.
- Kristniboðarnir á vettvangi í Eþíópíu: Karl, Ragnheiður, Helga Vilborg, Kristján og börnin Margrét Helga, Jóel, Dagbjartur Elí og Davíð Ómar; Sigríður Ingólfsdóttir.
- Fjölnir og Fanney sem eru við kristniboðanám í Ósló, Noregi ásamt drengjunum Daníel, Salómoni, Markúsi og Davíð Pálma. Aðrir Íslendingar og Íslandstengdir nemendur við skólann.
- Framtíð íslensku þjóðarinnar, fjármál og ráðamenn. Náð og miskunn, auðmýkt og andi fyrirgefningar. Þjóðin snúi sér til Drottins.
Til umhugsunar
Ei skal æðrast þótt liggi leið til fjalla
og oss langt finnist upp á sigurtind.
Því vér leiðumst og látum engan falla,
skært oss ljómar hin dýrsta fyrirmynd.
Yfir holt, yfir hraun,
gegnum harðneskju’ og raun
djarft vér göngum uns ljóma’ oss sigurlaun.
Sr. Friðrik Friðriksson
Með kærum kveðjum og blessunaróskum
Ragnar Gunnarsson framkvæmdastjóri