Kristniboðssambandið


Newsletter Item
CM_EDITION_OF
Kristniboðspósturinn 2. nóvember 2011

Kristniboðspósturinn

105. póstur, 2. nóvember 2011

 

GLS – ráðstefna á föstudag og laugardag

Kristniboðssambandið stendur ásamt ýmsum samfélögum og kirkjum að Global Leadership Summit í Salnum, Kópavogi, á föstudag og laugardag. Um er að ræða efni frá ráðstefnu Willow Creek samtakanna í Bandaríkjunum sem tekin var upp, textuð og verður sýnd hér. Úrvalsfyrirlesarar með hvetjandi boðskap og leiðsögn birtast á skjánum um víða veröld þessa dagana þar sem fólk kemur saman í hundraða- og þúsundatali. Enn er hægt að skrá sig og allar upplýsingar á www.gls.is

 

Frímerkjaklipparar

Við tökum á móti notuðum frímerkjum og helst viljum við fá þau á umslögunum. Ástæðan er sú að sum umslög með stimplum eru mun verðmætari en þegar búið er að klippa merkið af. Hins vegar þarf síðan að klippa frímerkin af mörgum umslaganna þegar búið er að yfirfara þau. Við auglýsum eftir fólki sem er tilbúð að klippa, heima hjá sér, eða með öðrum, þar eða hér hjá okkur. Jarle Reiersen mun leiðbeina fólki um hvernig klippa á þar sem það skiptir líka máli. Hafið samband við okkur hér eða beint við Jarle með pósti á jarle@holta.is">jarle@holta.is.

 

Vel merkt – flutningar framundan

Loks er búið að setja upp skilti hér fyrir utan Basarinn sem er upplýst og sést vel á horninu. Sömuleiðis var í gær sett upp merking á Miðbæ, húsnæðið þar sem Kristniboðssalurinn er og skrifstofurnar okkar verða frá og með miðjum mánuðinum. Ætlunin er að flytja skrifstofurnar þangað á 2. hæð í lok næstu viku og hafa opið hús síðdegis á kristniboðsdaginn, 13. nóvember. Vaskir menn hafa unnið sleitulaust við breytingar, lagfæringar á rafmagni og símalögnum, parketlögn, málningu og fleira undir stjórn Páls Friðrikssonar. Við ættum að vera komin í þjálfun með að flytja þar sem skrifstofurnar flytja nú í þriðja sinn á fjórum árum, væntanlega komin á endastöð.

 

Kristniboðsalmanakið 2012

Almanak næsta árs er komið út. Því verður dreift víða í kirkjum landsins á kristniboðsdaginn, 13. nóvember, á samkomum í Kristniboðssalnum, á Basarnum og síðan sent öllum áskrifendum Kristniboðsfrétta í byrjun desember.

 

Kristniboðsdagurinn 13. nóvember

Kristniboðsdagurinn er alltaf annan sunnudag í nóvember. Þá eru prestar og starfsfólk þjóðkirkjunnar hvatt til að minnast kristniboðsins, taka samskot og við hvetjum til þess að kristniboðsalmanakinu sé dreift í lok guðsþjónustu um land allt. Útvarpsguðsþjónustan verður frá Grensáskirkju þar sem undirritaður mun predika, Elsa Waage syngja og Ólafur Jóhannsson sóknarprestur þjóna fyrir altari. Starfsfólk SÍK og aðrir kristniboðar taka víða þátt í fræðslustundum, guðsþjónustum og samverum á kristniboðsdaginn eða næstu daga á undan og eftir.

 

Samkomur í Kristniboðssalnum á miðvikudögum kl. 20

2. nóvember: Fátækt og auðævi. Jak. 1.9-11. Sr. Jakob Á. Hjálmarsson talar. Fréttir af kristniboði um víða veröld í umsjá Ragnars Gunnarssonar. Sálmavinafélagið sér um söng og tónlistarmál.

9. nóvember. Um hjónabandið. Mark. 10:1-12. Ragnar Schram talar. Starf SÍK á heimavelli.

 

Salt kristið samfélag er með samkomur í safnaðarheimili Grensáskirkju alla sunnudaga kl. 17. Sjá nánar á www.saltks.is.

Kristniboðsfélag karla er með fundi annan hvern mánudag kl. 20. Kristniboðsfélag kvenna hittist annan hvern fimmtudag 17, en fundir hefjast með kaffi kl. 16. Bæði félögin hafa fundi sína í Kristniboðssalnum og allir karlar og konur eru velkomin eftir því sem við á.

 

Brosið: Björgun?

Skipið fórst en Jóni tókst að komast í land á eyðieyju þar sem hann dvaldi nokkrar vikur. Loks tókst honum að vekja athygli skips sem átti leið hjá ekki svo langt í burtu. Hann sá að bátur var settur út og kom að eyjunni. Sá sem var í forsvari rétti honum bunka af dagblöðum og sagði: „Skipstjórinn sagði að þú ættir að lesa þessi blöð og láta okkur síðan vita hvort þú hefðir í raun og veru áhuga á að láta bjarga þér.“

 

Til umhugsunar:

Sálmur 100 í Guðbrandsbiblíu 1584:

„Einn þakklætissálmur.
Syngið hátt lof Drottni, öll veröldin,

þjónið Drottni með fögnuði,
komið fyri hans ásján með glaðværi.
Meðkenni það Drottinn er Guð,

hann hefur gjört oss og ekki sjálfir vér,

sér til fólks og til sauða sinnar hjarðar.
Gangið inn um hans borgarhlið með þakkargjörð

og um hans fordyri með lofsöngvum,

þakkið honum, lofið hans nafn,
þvði að Drottinn hann er ljúfur

og hans miskunnsemi varir eilíflegana og hans sannleikur um aldur og ævi.“

 

Með kærum kveðjum og blessunaróskum

Ragnar Gunnarsson framkvæmdastjóri 

 


Dagskrá

23.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

24.05.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

30.05.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma

31.05.2012 20:00 - 22:00
Föndurkvöld

06.06.2012 20:00 - 21:00
Kristniboðssamkoma



Hafa samband
Senda inn bænarefni