Dagskrá

06.02.2012 20:00 - 21:00
Fundur í Kristniboðsfélagi karla

07.02.2012 19:30 - 21:30
Sakkeus - kvikmyndasýning

08.02.2012 20:00 - 21:00
SÍK samkoma

09.02.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

15.02.2012 20:00 - 21:00
SÍK samkoma


Heim
Newsletter Item
CM_EDITION_OF
Kristniboðspósturinn 30. september 2008

 

41. póstur, 30. september 2008

50 ára afmæli Frækornsins

Kristniboðsflokkurinn Frækornið hélt upp á hálfrar aldar afmæli sitt miðvikudaginn17. september sl. Var prestum í prófastsdæminu boðið og þeim sem tengst hafa starfinu með einhverjum hætti. Kristniboðsvinir frá Akureyri mættu í afmælið og einnig fulltrúar SÍK. Afmælishátíðin stóð í tæpa 4 tíma og var hin ánægjulegasta. Fékk fólk m.a fréttir af starfinu í Kína.  

Haustmarkaðurinn skilaði sínu

Haustmarkaðurinn okkar gekk vel og eru tekjur af honum orðnar nálægt 500 þúsundum. Við þökkum öllum sem aðstoðuðu með einhverjum hætti og þeim sem gáfu kökur, brauð, grænmeti og annan varning, kærlega fyrir þeirra framlag. Við biðjum Guð um að blessa gjafirnar og það sem inn kom.  

Af kynnisferðum til kristniboðslandanna

Þessa dagana eru sjö prestar staddir í Keníu til að kynna sér starf SÍK þar. Auk Kjartans Jónssonar sem er fararstjóri eru þetta Bolli Bollason, Friðrik Hjartar, Jón Helgi Þórarinsson, Ólafur Jóhannsson, Sigfús Kristjánsson og Sigurður Jónsson. Undirritaður talaði aðeins við Kjartan í síma í gær og var mjög gott hljóð í mönnum. Á sunnudag sóttu þeir guðsþjónustur í Chepareria, voru í gær á fræðslumiðstöð kirkjunnar í Kapenguria og fara í dag í heimsókn til Williams Lopeta biskups, en hann býr á Lelan, fjallasvæðinu fyrir ofan Chepareria. Skúli Svavarsson og Kjellrun Langdal halda ásamt nokkrum öðrum til Eþíópíu 8. október til að kynna sér starf íslensku kristniboðanna og kirkjunnar þar. Skúli og Kjellrun fara síðan í nokkurra daga heimsókn til Keníu og líta m.a. eftir skólabyggingaverkefninu í Pókot. Kynningarfundur vegna kristniboðsferð unga fólksins (Krung) næsta sumar til Keníu verður í safnaðarheimili Neskirkju fimmtudaginn 2. október kl. 20. Aldurstakmark er 18 ár.  

Fjármál og gengisfall

Óstöðugleiki íslensku krónunnar kemur sér illa fyrir Kristniboðssambandið eins og fleiri sem eru með skuldbindingar í erlendri mynt. Við hvetjum kristniboðsvini til að biðja fyrir fjármálum SÍK og að nóg fé fáist til að endar nái saman í lok árs. Eitthvað vorum við búin að greiða áður en allt fór af stað en aðeins brot. Kostnaðarauki okkar vegna þessa er nokkrar milljónir.   

Basarinn – opnunartími í vetur – góðar gjafir

Nytjamarkaðurinn okkar verður í vetur opinn sem hér segir: Mánudaga til föstudaga kl. 12-17 og fyrsta laugardag hvers mánaðar kl. 11-14 (þ.e. nú á laugardag næst). Margt forvitnilegt er á markaðnum en við minnum einnig að að við höfum góðar gjafavörur til sölu, t.d. sjöl, bindi og fleira frá Kína, sjöl, ilmolíur, silfurkrossa og fleira frá Eþíópíu og Keníu. Allt eru þetta góðar tækifæris- og jólagjafir.  

Blaðaútgáfan

Kristniboðsfréttir koma út á næstunni en þær eru nú í prentsmiðjunni. Bjarmi er einnig væntanlegur um 10. október. Þá er nýtt Kristniboðsalmanak væntanlegt á næstunni.  

Ný bók: Fimm táknmál ástarinnar

Loks er hún komin út alþjóðlega metsölubókin Fimm táknmál ástarinnar sem gefin er út af Salti ehf. Höfundur er Gary Chapman sem hefur samið fjölda bóka um hjónaband, uppeldi og fjölskyldumál. Bókin fjallar um fimm mismunandi leiðir til að tjá ást sína og mikilvægi þess að hjón tjái hvort örðu ást á táknmáli því sem er makanum tamast. Margt fólk sem hefur tileinkað sér efni bókarinnar og farið eftir ábendingum höfundar hefur upplifað nýja byrjun í hjónabandinu. Bókin kostar kr. 3.290 en er á tilboðsverði á Basarnum okkar á kr. 2.900.Í októberlok er væntanleg önnur bók, Dauðinn, sorgin, vonin eftir Fleming Kofed-Svendsen. Hann missti son, tengdadóttur og tvö barnabörn í flóðbylgjunni á annan dag jóla árið 2004. Hann fjallar um allar spurningarnar sem vöknuðu og innri baráttu trúarinnar í kjölfar þessa.   

Samkomur í Kristniboðssalnum, miðvikudaga kl. 20

1. október Sonur glötunarinnar, 2. Þess. 2. Haraldur Ólafsson kristniboðiFréttir af sjónvarpskristniboði8. október Góði Sáttmálinn, Jer. 11. Helgi HróbjartssonFrjálsir vitnisburðir. Salt kristið samfélag er með samkomur í Kristniboðssalnum á sunnudögum kl. 17.  

Brosið: Eplin og smákökurnar

Í kaþólskum grunnskóla nokkrum var komið að hádegisverði og börnin stóðu í röð þar sem maturinn var afgreiddur. Fremst var stór skál full af girnilegum eplum. Nunnurnar höfðu skrifað á blað þar hjá: „Takið aðeins eitt. Guð fylgist með.“
Nokkru lengra í röðinni á hinum enda borðsins var stórt fat fullt af súkkulaðismákökum. Eitt af börnunum hafði skrifað á miða: „Takið eins mikið og þið getið. Guð er að passa eplin.“ 

Nokkur bænarefni

  • Útgáfumálin: Kristniboðsfréttir, Bjarmi, Fimm táknmál ástarinnar, Dauðinn, sorgin, vonin.
  • Starfsfólk SÍK og Salts á heimavelli: Ragnar, Skúli, Kristín, Agnes og Hermann Ingi.
  • Kristniboðarnir á vettvangi í Eþíópíu: Karl, Ragnheiður, Helga Vilborg, Kristján og börnin Margrét Helga, Jóel, Dagbjartur Elí og Davíð Ómar; Sigríður Ingólfsdóttir.
  • Katsko og Leifur Sigurðsson ásamt þeirra syni Hannesi í Japan.
  • Fjölnir og Fanney sem eru við kristniboðanám í Ósló, Noregi ásamt drengjunum Daníel, Salómoni, Markúsi og Davíð Pálma. Aðrir Íslendingar og Íslandstengdir nemendur við skólann.  

Til umhugsunar

Samtal felur í sér það að menn skiptast frjálslega og eðlilega á hugsunum. Og því meira sem samtalið felur í sér milli þeirra beggja, því auðugura er samlíf þeirra. Bæn er að veita Jesú inngöngu í líf okkar. Hann knýr á og vill komast inn, ekki aðeins á hátíðlegum bænastundum þegar þú beygir hné og spennir greipar í einrúmi eða situr í samfélagi heilagra á sambænastund. Nei, hann knýr á og vill komast inn til þín í önnum daglegs starfs þíns, striti og umstangi.Þá hefur þú mesta þörf á því. Og hann vill komast inn til þín til þess að neyta kvöldverðar með þér. Hann sér að þú hefur aldrei meiri þörf á endurnæringu hans en einmitt í erfiði dagsins. Hlustaðu því á er Jesús knýr á dyr í önnum hins daglega starfs og í hvíld. Farðu eftir bendingu andans um að senda kyrrlátt andvarp upp til hans sem vakir yfir þér dag og nótt.

Ole Hallesby: Úr heimi bænarinnar 2002, bls. 121.   

Með kærum kveðjum og blessunaróskum

Ragnar Gunnarsson framkvæmdastjóri



sik.is

Ýmislegt efni

Tengdar síður

Samstarfsaðilar


Kristniboðssambandið | Háaleitisbraut 58-60 | 108 Reykjavík | Sími: 533 4900 | Netfang: sik@sik.is
© Kristniboðssambandið 2011