Kristniboðspósturinn - netfréttabréf SÍK
96. póstur, 1. júní 2011
Námskeið um tjaldgjörðarstarf
Kristniboðssambandið stendur fyrir námskeiði í næstu viku, á þriðjudaginn kemur 7. júní 2011, kl. 18.00- 22.00 (með hléi fyrir mat og hresingu)
í Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut 58-60 3. hæð.
Kostnaður: 1000 kr á mann.
Skráning hjá sik@sik.is eða í síma 533 4901. Skráningu lýkur á hádegi, 7. júní.
Leiðbeinandi: Ari Rocklin, framkvæmdastjóri GLOBAL Opportunities í Kananda og sérfræðingur í „tjaldgjörðarstarfi“.
GLOBAL Opportunities eru samtök sem kynna tjaldgjörðarstarf fyrir kristnu fólki, þjálfar það og gerir því kleift að vinna í öðrum heimshlutum sem „tjaldgjörðarmenn“.
Hvað er „tjaldgjörðarstarf“? Hugtakið vísar í reynslu Páls postula sem sagt er frá í Postulasögunni, 18. Kafla, en Páll sá fyrir sjálfum sér með vinnu sem tjaldgjörðarmaður þegar hann fór um, vitnaði og prédikaði. Nú á dögum er „tjaldgjörðarstarf“ árangursrík leið til að ástunda kristniboð. Það opnar kristnu fólki leið að nota sérfræðiþekkingu sína og um leið að ná til þjóðanna með fagnaðarerindið um Krist.
Ari Rocklin mun halda kynningarnámskeið hér á landi en hann kemur hingað frá Bergen þar sem hann mun kenna á nokkurra daga löngu námskeiði. Hann bauðst til að koma hingað til lands á leið sinni heim. Ari Rocklin er eftirsóttur sem ræðumaður og fræðari á ráðstefnum og í biblíuskólum víða um heim. Hann nær að hrífa fólk með sér og hvetja það til dáða. Hann er einnig ráðgjafi Alfa-námskeiðanna sem hafa þróað sérstakt Alfa-námskeið til notkunar á vinnustöðum.
Þetta er einstakt tækifæri til þess að kynnast betur heiminum og nýjum leiðum til að taka þátt í kristniboðsstarfi. Á námskeiðinu verður tækifæri til að spyrja spurninga.
Námskeiðið fer fram á ensku en reynt verður að bjóða upp á túlkun ef þess verður þörf.
Verið velkomin!
Kristniboðsfréttir í prentun
Kristniboðsfréttir eru nú í prentun og væntanlegar til áskrifenda í næstu viku. Með fylgir bréf og hvatning til að gefa sumargjöf til kristniboðsins. Í blaðinu er fjöldi greina og frétta af starfinu sem vonandi verður til uppörvunar og gleði fyrir þau sem styðja starfið og bera hag þess fyrir brjósti. Áskrift er ókeypis og aðeins þarf að senda upplýsingar um nafn og heimilisfang á kristin@sik.is og skrá sig þannig sem áskrifandi. Þess má geta að í blaðinu er kynnt bókatilboð, rýmingarsala Salt ehf, þar sem 10 titlar verða til sölu á 500 krónur hver fram til 16. júní.
Reykjavíkurmaraþon
Eins og undanfarin ár getur fólk sem hleypur í Reykjavíkurmaraþoni skráð Kristniboðssambandið sem sín góðgerðasamtök. Þá geta ættingjar og vinir heitið á viðkomandi og renna þeir fjármunir til okkar, svo framarlega sem hlauparinn lýkur hlaupinu. Ekki er búið að opna fyrir skráningu áheita en það verður væntanlega á næstu dögum.
Mikið af vörum berst á Basarinn
Mikið hefur borist af vörum á nytjamarkaðinn okkar undanfarnar vikur, enda vorið tími tiltekta hjá fólki. Verið velkomin að líta á úrvalið, kl. 11-18 mánudaga til föstudaga.
Starfsmannamál
Nokkrar breytingar verða á starfsmannamálum á næstu mánuðum. Rósa Margrét Tryggvadóttir hefur verið ráðin sem sumarstarfsmaður á Basarinn vegna sumarleyfa starfsmanna og sjálfboðaliða. Karl Jónas Gíslason kristniboði kemur til starfa hjá okkur 1. júlí en Kristján Þór Sverrisson kristniboði verður í feðraorlofi í júní, júlí og ágúst.
Húsnæðiskaup
SÍK hefur fest kaup á 145 fm skrifstofuhúsnæði á miðhæðinni, fyrir neðan Kristniboðssalinn, Háaleitisbraut 58-60. Kaupverð er 18 milljónir þar sem 11,3 milljónir eru greiddar út en afgangurinn á þremur árum. Stjórnin telur þetta styrkja grunnstoðir starfsins og fjárhag Sambandsins til frambúðar. Stjórnin mun á fundi sínum 14. júní ræða notkun eða hugsanlega leigu plássins alls eða hluta þess. Verið er að skoða nokkra möguleika í því sambandi, m.a. að stækka rými Basarsins og að flytja skrifstofuaðstöðu einhverra starfsmanna á nýjan stað. Allar tillögur og ábendingar eru vel þegnar. Íslandsbanki er með húsnæðið í leigu út ágúst. Í framtíðinni býður þetta upp á samnýtingu Kristniboðssalar og þessa húsnæðis á 2. hæð.
Sumarmót Kristniboðssambandsins að Löngumýrarmót
Mótið hefst föstudaginn 15. júlí kl. 21.00. Fjölbreytt dagskrá verur alla helgina. Lögð verður áhersla á gott samfélag um Guðs orð og kynningu á kristniboði okkar Íslendinga. Á milli samverustundanna verður gott tækifæri til að spjalla saman og njóta náttúrunnar í Skagafirði eða láta sér líða vel í heita pottinum á Löngumýri. Í nágrenni Löngumýrar er fyrirtækið Hestasport, ævintýraferðir sem býður upp á hestaferðir, klettaklifur, ýmiss konar siglingar og fleira skemmtilegt fyrir bæði börn og fullorðna. Allir eru hjartanlega velkomnir á mótið. Gott er að sameina sumarfrí á friðsælum stað og fá jafnframt góða andlega uppbyggingu. Hægt er að gista inni eða tjalda á svæðinu. Skráning fer fram á Löngumýri í síma 453 8116. Frekari upplýsingar um mótið fást á skrifstofu Kristniboðssambandsins, Háaleitisbraut 68, sími 533 4900 og hér að neðan.
Dagskrá mótsins:
Föstudagur 15. júlí
Kl. 21.00 Upphafssamkoma. Agnes Ragnarsson og Fanney Ingadóttir sjá um samkomuna.
Laugardagur 16. júlí.
Kl. 10,00 Biblíulestur, Skúli Svavarsson.
Kl. 11.00 Umræður í hópum.
Kl. 17.00 Kristniboðssamvera í umsjón kristniboða sem eru heima.
Kl. 21.00 Vitnisburðar- og bænasamkoma.
Hugleiðing: Margrét Hróbjartsdóttir.
Sunnudagur. 17. júlí.
Kl. 11.00 Guðsþjónusta í Reykjakirkju. Sr. Ólafur Hallgrímsson þjónar fyrir altari og Guðlaugur Gunnarsson prédikar.
Kl. 14.00 Kveðjusamkoma. Haraldur Jóhannsson talar.
Mótsgjald er kr. 2.000. Fullt fæði, mótsgjald og gisting inni án rúmfata kostar kr. 16.500 og með rúmfötum kr. 18.500.
Verðskrá fyrir stakar máltíðir (vinsamlegast látið vita í eldhúsi með góðum fyrirvara): Föstudagur: Súpa kr. 1.200. Laugardagur: Morgunverður kr. 1.200, hádegisverður kr. 1.500, miðdagskaffi kr. 1.000, kvöldverður kr. 2.000, kvöldhressing kr. 600. Sunnudagur: Morgunverður kr. 1.200, hádegisverður kr. 2.500 og kaffi kr. 1.200.
Samkomur í Kristniboðssalnum á miðvikudögum kl. 20
1. júní: Þolgæði í þrengingum, Heb. 10.32-39. Ragnar Gunnarsson talar.
8. júní: Læra af reynslu, Mk. 8:14-21. Haraldur Jóhannsson talar.
15. júní: Það sem trúin sér. Heb. 11:1-7. Ragnar Schram talar.
Salt kristið samfélag er með samkomur í Grensáskirkju alla sunnudaga kl. 17. Sjá nánar á www.saltks.is.
Hlutur beinna útsendinga eykst
Sjónvarpsstöðin Sat-7, sem SÍK er samstarfsaðili að, sendir kristilega dagskrá á arabísku til Mið-Austurlanda, á farsi til Íran og eins á tyrknesku til Tyrklands og tyrkneskmælandi svæða. Rita Elmounayer sem er fædd og uppalin í Líbanon er dagskrástjóri. Hún segir í viðtali við sænska blaðið efs.nu að ein helsta áskorun Sat-7 sé að auka hlut beinna útsendinga. Yfirleitt er um að ræða þætti þar sem fólk getur hringt inn með vandamál sín og spurningar. Fólk gefur ekki upp nöfn en málin eru rædd í þáttum stöðvarinnar. Stundum kemur það fyrir að fólk hringir og heldur línunni upptekinni, aðrir koma með hótanir og í sumum löndum koma yfirvöld í veg fyrir að fólk geti hringt inn, en þetta hefur allt gengið vel samt sem áður. En ljóst er að þessir þættir, með þátttöku áhorfenda, eru mjög vinsælir.
Brosið J
Pétur litli hafði alltaf átt í vandræðum með að bera fram R í upphafi orðs og var á eftir öllum hinum í bekknum sem stríddu honum. Kennarinn gaf honum þá setningu til þess að æfa sig á: „Róbert rétti Rögnvaldi ristað brauð með rabbabarasultu.“ Nokkrum dögum síðar bað kennarin hann um að fara með setninguna fyrir bekkinn. Pétur var ekki í vandræðum: „Berti lét Valda fá hitað brauð með brúnni sultu.“
Til umhugsunar
Hér fylgir áfram ferðabæn Hallgríms Péturssonar sem er nr. 493 í Sálmabókinni:
Ég byrja reisu mín,
Jesús, í nafni þín,
höndin þín helg mig leiði,
úr hættu allri greiði.
Jesús mér fylgi í friði
með fögru engla liði.
Í voða, vanda og þraut
vel ég þig förunaut,
yfir mér virstu vaka
og vara á mér taka.
Jesús mér fylgi í friði
með fögru engla liði.
Með kærum kveðjum og blessunaróskum
Ragnar Gunnarsson framkvæmdastjóri
Aðalvalmynd
Dagskrá
23.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
24.05.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
30.05.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
31.05.2012 20:00 -
22:00
Föndurkvöld
06.06.2012 20:00 -
21:00
Kristniboðssamkoma
