Dagskrá

07.02.2012 19:30 - 21:30
Sakkeus - kvikmyndasýning

08.02.2012 20:00 - 21:00
SÍK samkoma

09.02.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

15.02.2012 20:00 - 21:00
SÍK samkoma

22.02.2012 20:00 - 21:00
SÍK samkoma


Heim
Newsletter Item
CM_EDITION_OF
Kristniboðspósturinn, 78. póstur, 12. ágúst 2010

Ágætu viðtakendur!

Nokkuð er liðið frá síðasta kristniboðspósti vegna sumarleyfa og anna en nú bætum við úr á komandi vikum.

 

Krunghópurinn í Eþíópíu

Guðlaugur Gunnarsson, kristniboði og gjaldkeri SÍK, er nú í Eþíópíu með 13 ungmenni í kristniboðsferð unga fólksins (Krung). Eru þau væntanleg heim aðra helgi. Fara þau vítt og breitt um suðurhluta landsins og koma við á þeim stöðum sem íslenskir kristniboðar hafa starfað hvað mest á frá upphafi. Minnumst hópsins í bænum okkar.

 

Sjálfboðaliði

Gísli Guðlaugsson (20 ára) verður sjálfboðaliði í Keníu í vetur og mun m.a. sinna kennslu Salómons, sonar Fanneyjar og Fjölnis. Gísli er uppalinn í Eþíópíu og stundaði nám við biblíuskóla á Bretlandseyjum í fyrravetur. Hann tekur nú þátt í Krung-ferð til Eþíópíu og fer yfir til Keníu er hópurinn heldur heim, 20. ágúst.

 

Starfsmannamál

Kristján Þór Sverrisson kristniboði kemur til starfa á heimavelli í næstu viku. Mun hann sinna ýmsum verkum eins og við sem hér erum, ekki síst kynningu og fræðslumálum. Sigurður Bjarni Gíslason sem verið hefur í hálfu starfi liðið ár hættir nú í lok ágústmánaðar.

  

Haustmarkaðurinn verður 11. september

Árlegur haustmarkaður SÍK og Kristniboðsfélags kvenna verður haldinn laugardaginn 11. september í Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut 58-60, kl. 11-14. Við vonumst til að hafa grænmeti, ber, sultur og saft, ýmsar matvörur og kökur á boðstólunum til styrktar starfinu. Tekið verður á móti vörum á föstudeginum kl. 16-19 á sama stað.

 

Stjórn SÍK

Á aðalfundi SÍK í vor urðu nokkrar breytingar á stjórn Kristniboðssambandsins: Haraldur Jóhannsson formaður, Katrín Ásgrímsdóttir varaformaður, Hanna Þórey Guðmundsdóttir ritari, Guðlaugur Gunnarsson gjaldkeri, Bjarni Árnason, Kristján S. Sigurðsson og Ásta Bryndís Schram meðstjórnendur. Varamenn eru þeir Sigurður Bjarni Gíslason og Pétur Ásgeirsson og mun Sigurður Bjarni taka sæti Ástu núna þar sem hún er flutt til útlanda.

 

Löngumýrarmót vel sótt

Sumarmót SÍK að Löngumýri var haldið þriðju helgi í júlí og vel sótt. Var fólk almennt mjög ánægt með dvöl og dagskrá og átti gott samfélag um Guðs orð og við hvert annað. Við þökkum öllum sem lögðu á sig vinnu og sáu um dagskrá mótsins.

 

GLS

Leiðtogaráðstefnan Global Leadership Summit verður haldin í Digraneskirkju dagana 5. og 6. nóvember n.k. Um er að ræða samkirkjulega ráðstefnu frá Willow Creek samtökunum í Bandaríkjunum. Fyrsta ráðstefnan af þessu tagi var haldin hér á landi í fyrra og sóttu hana um 200 manns. Skráning er hafin og nánari upplýsingar á www.gls.is. Ódýrast er að skrá sig sem fyrst, þ.e. fyrir lok ágústmánaðar. Agnes T. Ragnarsson situr í undirbúningsnefndinni fyrir hönd SÍK.

 

Maraþonið

Reykjavíkurmaraþon verður hlaupið 21. ágúst n.k. og eins og undanfarin ár verður hægt að heita á hlaupara sem hlaupa fyrir Kristniboðssambandið. Enn sem komið er eru aðeins þrjú skráð en væntanlega mun fjölga í hópnum á næstunni. Kristniboðssambandið var í áheitagjöf meðal 10 efstu góðgerðafélaganna í fyrra. Bendið gjarnan ættingjum og vinum á tækifærið, nánar á www.hlaupastyrkur.is. Þar má velja Kristniboðssambandið undir góðgerðarfélögum eða fara beint inn á http://www.hlaupastyrkur.is/godgerdafelog/nanar/4902/kristnibodssambandid.

 

Samkomur í Kristniboðssalnum á miðvikudögum kl. 20

18. ágúst

Fagnaðarsamkoma fyrir kristniboðana Helgu Vilborgu Sigurjónsdóttur og Kristján Þór Sverrisson. Þau komu heim til Íslands að loknu 5 ára starfstímabili í Eþíópíu í byrjun júní. 

25. ágúst

Jesús á að sjást. Mk. 4:21-25. Ragnar Gunnarsson flytur hugleiðingu.

Samkomudagskrá Salts kristins samfélags (sunnudaga kl. 17) er á www.saltks.is.

  

Brosið: Gnístran tanna

Texti kvöldsins var úr Matteusarguðspjalli, 13, kafla, um ferns konar sáðjörð og hvernig Jesús útskýrði dæmisöguna. Vakningaprédikarinn útlistaði allt hið besta og þar á meðal orð Jesú í 41. versi: „Mannssonurinn mun senda engla sína og þeir munu nema brott úr ríki hans allt sem leiðir í villu og alla er illt fremja og kasta þeim í eldsofninn. Þar verður grátur og gnístran tanna.“ Þá heyrðist frá gamalli konu aftan úr salnum: „Ég á nú engar tennur eftir.“ En prédikarinn var snöggur að svara og sagði: „Engar áhyggjur, frú mín góð, engar áhyggjur. Öllum verður séð fyrir tönnum.“

 

Til umhugsunar

Ef við segjum: „Við höfum ekki synd,“ þá blekkjum við sjálf okkur og sannleikurinn er ekki í okkur. Ef við játum syndir okkar, þá er hann trúr og réttlátur svo að hann fyrirgefur okkur syndirnar og hreinsar okkur af öllu ranglæti. (1Jh 1:8-9)

 

Með kærum kveðjum og blessunaróskum

Ragnar Gunnarsson framkvæmdastjóri 

 



sik.is

Ýmislegt efni

Tengdar síður

Samstarfsaðilar


Kristniboðssambandið | Háaleitisbraut 58-60 | 108 Reykjavík | Sími: 533 4900 | Netfang: sik@sik.is
© Kristniboðssambandið 2011