Dagskrá

06.02.2012 20:00 - 21:00
Fundur í Kristniboðsfélagi karla

07.02.2012 19:30 - 21:30
Sakkeus - kvikmyndasýning

08.02.2012 20:00 - 21:00
SÍK samkoma

09.02.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

15.02.2012 20:00 - 21:00
SÍK samkoma


Heim
Newsletter Item
CM_EDITION_OF
Kristniboðspósturinn 10 . júní 2010

Kristniboðspósturinn

77. póstur, 10. júní 2010

 

Aðalfundur samþykkti Japan sem nýtt starfssvæði

Á aðalfundi SÍK í liðnum mánuði var samþykkt að bæta Japan við sem starfssvæði Kristniboðssambandsins. Í því felst m.a. að Leifur Sigurðsson verður kristniboði okkar þar en hann býr í Japan ásamt Katsuko eiginkonu sinni og börnunum, Hannesi og Lilju. Leifur lærir japönsku þessa mánuðina og væntanlega til loka næsta árs.

Önnur mál sem voru á dagskrá aðalfundar, þ.e. stefnumótun og tengsl við Þjóðkirkjuna og svo nýtt slagorð voru send til stjórnarinnar til afgreiðslu. Hanna Þórey Guðmundsdóttir var kosin í stjórn SÍK og Kristján S. Sigurðsson endurkjörinn, en Sigurður Bjarni Gíslason og Pétur Ásgeirsson sem varamenn.

 

Helga Vilborg og Kristján Þór komin heim

Kristniboðarnir Helga Vilborg Sigurjónsdóttir og Kristján Þór Sverrisson komu ásamt börnum sínum fjórum, Margréti Helgu, Jóel, Dagbjarti Elí og Davíð Ómari til landsins í síðustu viku. Lauk þar með 5 ára starfstímabili þeirra í Eþíópíu, nú síðustu tvö árin í Voító.

 

Löngumýrarmót

Mótið hefst föstudaginn 16. júlí kl. 21.00 og því lýkur sunnudaginn 18. júlí klukkan rúmlega 15.

Lögð verður áhersla á gott samfélag um Guðs orð og kynningu á kristniboði. Á milli samverustundanna verður gott tækifæri til að spjalla saman og njóta náttúrunnar í Skagafirði eða láta sér líða vel í heita pottinum á Löngumýri.Í nágrenni Löngumýrar er fyrirtækið Hestasport, ævintýraferðir sem býður upp á hestaferðir, klettaklifur, ýmiss konar siglingar og fleira skemmtilegt fyrir bæði börn og fullorðna. Gott er að sameina sumarfrí á friðsælum stað og fá jafnframt góða andlega uppbyggingu. Hægt er að gista inni eða tjalda á svæðinu.

 

Fjöllbreytt dagskrá alla helgina:

Föst. 16. júlí

Kl. 21.00: Upphafssamkoma. Agnes og Baldur Ragnarsson sjá um samkomuna.

Laug. 17. júlí

Kl. 10.00: Biblíulestur, Skúli Svavarsson.

Kl. 11.00: Umræður í smáhópum.

... frí

Kl. 17.00: Kristniboðssamvera í umsjá Kari og Jóhannesar Ólafssonar, og Agnesar og Baldurs Ragnarssonar.

Kl. 21.00: Vitnisburðar og bænasamkoma. Hugleiðing: Margrét Hróbjartsdóttir.

Sun. 18. júlí

Kl. 11.00: Guðsþjónusta í Sauðárkrókskirkju, sr. Gísli Gunnarsson og sr. Helgi Hróbjartsson þjóna og prédika.

Kl. 14.00: Kveðjusamkoma. Kari og Jóhannes Ólafsson sjá um samkomuna.

 

Allir eru hjartanlega velkomnir á mótið! Skráning fer fram á Löngumýri í síma 453 8116.

Frekari upplýsingar fást á skrifstofu Kristniboðssambandsins, Háaleitisbraut 68, s. 533 4900, netfang: sik@sik.is

 

Samkirkjuleg bænasamvera á 17. júní

Kristniboðssambandið stendur ásamt ýmsum kristnum samtökum og kirkjum að samkirkjulegri bænastund í Hallgrímskirkju á þjóðhátíðardaginn kl. 16. Beðið verður fyrir landi og þjóð en undirbúningur hefur verið í höndum þeirra sem hafa komið saman vikulega í Friðrikskapellu í hádeginu á miðvikudögum í næstum tvö ár. Nú hvetjum við fólk til að mæta og helst að fylla kirkjuna. Við trúum því að það hafi gildi og máttur bænarinnar er mikill. Stundin tekur rúman hálftíma og börn eru hjartanlega velkomin líka. Frá kl. 15:45 verður sungið í kirkjunni. Það er því kjörið að enda bæjarrápið með því að taka þátt í þessari bænastund.

 

Minning

Góður kristniboðsvinur, Sigursteinn Hersveinsson var jarðsunginn fyrr í vikunni. Hann sat í hálfan annan áratug í varastjórn SÍK, var meðlimur í Kristniboðsfélagi karla, bað reglulega fyrir og fylgdist mjög vel með kristniboðunum. Nýtti hann sér netið og nýjustu tækni til að fá ferskar fréttir af bloggsíðum kristniboðanna. Við blessum minningu Sigursteins og þökkum allt sem hann var og vann fyrir kristniboðið á langri ævi.

 

Sumargjöf til SÍK

Kristniboðsfréttir komu út í lok síðustu viku og með þeim var sent bréf, ákall um sumargjöf til kristniboðsins. Við leyfum okkur að minna á þetta tækifæri til að leggja starfinu lið. Starf okkar er mikilvægt enda þarf heimurinn á kærleika Jesú að halda. Kærar þakkir til ykkar sem þegar hafið brugðist við.

 

Tvö bænarefni

Þrettán manna hópur ungmenna heldur til Eþíópíu í kynnisferð í lok júlí undir fararstjórn Guðlaugs Gunnarssonar. Biðjum fyrir hópnum, að allt gangi vel, ferðin verði til blessunar og uppörvunar, bæði fyrir þátttakendur og heimamenn.

Eins biður söfnuðurinn í Konsó í Eþíópíu um fyrirbæn vegna deilna sem lengi hafa sett mark sitt á starfið og hamlað frekari vexti. Biðjum um sátt og frið.

 

Vel gengur á nýjum stað

Basarinn, nytjamarkaðurinn okkar, hefur tekið vel við sér á nýjum stað í Austurveri, Háaleitisbraut 68. Mun fleira fólk kemur hingað, bæði að versla og eins og afhenda okkur muni til að selja. Er ljóst að veltan mun alla vega þrefaldast miðað við það sem var á Grensásvegi 7. Clara Waage og Oddrún Jónasdóttir Uri hafa bjargað okkur ásamt dyggri aðstoð Rannveigar Ólafsdóttur, Önnu Einarsdóttur Skaatan og fleirum. Ef einhver vill og getur hjálpað nokkrar klukkustundir á viku væri það vel þegið. Ekki er þörf á reynslu í verslunarrekstri og við reynum að bestu getu að kenna á það litla sem kenna þarf á. Hafið gjarnan samband við Kristínu Bjarnadóttur, kristin@sik.is eða í síma 533 4900. Það má koma og kynna sér málið og prófa ef fólk vill ekki skuldbinda sig strax.

 

Samkomur í Kristniboðssalnum á miðvikudögum kl. 20

16. júní

Vitnisburðurinn um Jesú hefur áhrif. Mk. 3.7nn. Sr. Kjartan Jónsson talar. Vitnisburðir.

23. júní

Jesús, Guðs sonur, er æðstur. Heb. 2.1-4. Agnes T. Ragnarsson talar. Bænastund.

30. júní

Sendir af Jesú, Mk. 3.13nn. Halldóra Lára Ásgeirsdóttir talar. Fréttir af Sat 7.

Samkomudagskrá Salts kristins samfélags (sunnudaga kl. 17) er á www.saltks.is.

  

Til umhugsunar

Dýrð Drottins vari að eilífu,
Drottinn gleðjist yfir verkum sínum,
hann sem lítur til jarðar svo að hún nötrar,
sem snertir við fjöllunum svo að úr þeim rýkur.
Ég vil ljóða um Drottin meðan lifi,
lofsyngja Guði mínum meðan ég er til.
Ó, að mál mitt mætti falla honum í geð.
Ég gleðst yfir Drottni.. (Sl. 104.31-34)

 

Með kærum kveðjum og blessunaróskum

Ragnar Gunnarsson framkvæmdastjóri 

 

 



sik.is

Ýmislegt efni

Tengdar síður

Samstarfsaðilar


Kristniboðssambandið | Háaleitisbraut 58-60 | 108 Reykjavík | Sími: 533 4900 | Netfang: sik@sik.is
© Kristniboðssambandið 2011