Aðalvalmynd
Dagskrá
06.02.2012 20:00 -
21:00
Fundur í Kristniboðsfélagi karla
07.02.2012 19:30 -
21:30
Sakkeus - kvikmyndasýning
08.02.2012 20:00 -
21:00
SÍK samkoma
09.02.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
15.02.2012 20:00 -
21:00
SÍK samkoma
Við höfum nú haft opið hér í Austurveri í rúma viku. Við kunnum afskaplega vel við okkur og erum ánægð að sjá hve margir líta inn til okkar. Ef einhver ykkar hafa smá tíma, brot úr degi, t.d. á föstudag eða í næstu viku, væri vel þegið að fá hjálp við að kom hlutum á sinn stað og verðmerkja.
Aðalfundurinn
Aðalfundurinn er nú á laugardag í Kristniboðssalnum, Miðbæ við Háaleitisbraut. Fundurinn er öllum opinn en atkvæðisrétt hafa einstaklingsaðilar og félagar í aðildarfélögum sambandsins sem greitt hafa árgjald liðins árs. Dagskráin hefst með hugleiðingu Skúla Svavarssonar kristniboða og sambæn kl. 9:30. Venjuleg aðalfundarstörf hefjast um kl. 10 og halda áfram með hádegishléi og mat kl. 12:15-13. Aðalfundarstörf eru sem hér segir: Kosning fundarstjóra og ritara. Skýrsla stjórnar, skýrslur aðildarfélaga og reikningar. SÍK og Þjóðkirkjan – stefnumörkun. Nýtt starfssvæði: Japan. Einkunnarorð SÍK. Kosning í stjórn (þrír til þriggja ára). Kosning í varastjórn (tveir til eins árs). Kosning tveggja skoðunarmanna. Ákvörðun árgjalds og önnur mál. Starfsskýrsla stjórnar verður sett hér inn á vefsíðuna innan skamms og dreift prentaðri á fundinum.
Fjáröflunarsamkoma Kristniboðsflokks KFUK í kvöld
Kristniboðsflokkur KFUK hefur sína árlegu fjáröflunarsamkomu í Kristniboðssalnum í kvöld kl. 20. Happdrætti, einsöngur og hugleiðingu flytur Guðlaugur Gunnarsson. Kökusala eftir samkomuna. Kjörið að ná sér í gott bakkelsi fyrir uppstigningardag.
Löngumýrarmót
Löngumýrarmót hafa verið haldin í 30 ár og mótið í sumar verður helgina 16.-18. júlí í sumar. Nánari fregnir er nær líður en þau sem vilja tryggja sér pláss inni geta hringt á Löngumýri og pantað. Síminn er 453 8116.
Grensásvegur 7, 2. h. til hægri til sölu eða leigu
Húsnæðið okkar á Grensásvegi er nú til sölu eða leigu. Söluverð atvinnuhúsnæðis á 2. hæð er mjög lágt um þessar mundir og því er ætlunin að skoða hvort við getum leigt það út. Hins vegar er lausafjárstaðan okkar orðin tæp sem þrýstir á að við seljum frekar en leigjum. Við hvetjum ykkur til að láta vita af því að húsnæðið sé til sölu eða leigu.
Kólerufaraldur í Pókothéraði
Kólerufaraldur hefur komið upp í Kapenguria og Chepareria í Pókot. Mörgum matsölustöðum og mörkuðum hefur verð lokað. Við minnumst þess ekki að það hafi gerst áður þau 32 ár sem íslenskir kristniboðar hafa verið þar að verki.
Samkomur í Kristniboðssalnum á miðvikudögum kl. 20
12. maí
Fjáröflunarsamkoma í umsjá kristniboðsflokks KFUK. Stunda góð verk. Guðlaugur Gunnarsson talar.
19. maí
Hvíldardagur vegna mannsins. Sr. Jakob Á. Hjálmarsson talar og segir frá starfi sínu í Pókot í Keníu.
Samkomudagskrá Salts kristins samfélags (sunnudaga kl. 17) er á www.saltks.is.
Brosið – Móttakandi greiðir
Séra Sigurður hélt óvenjustutta prédikun einn sunnudaginn. Hann útskýrði fyrir söfnuðinum að tíkin hans, sem væri mjög hrifin af pappír, hefði etið helming prédikunarinnar fyrr um morguninn og því yrði hún ekki lengri. Að lokinni guðsþjónustu heilsaði prestur öllum með handabandi og þar á meðal var gestur utan af landi. Hann sagði: Séra minn, ef tíkin þín á einhverja hvolpa, væri það mér ánægja að færa sóknarprestinum mínum einn að gjöf.
og hrópaði: „Mamma, mamma, þeir hafa tekið pabba. Og við eigum að borga!“
Til umhugsunar
Metta oss að morgni með miskunn þinni,
að vér megum fagna og gleðjast alla daga vora.
Veit oss gleði í stað daga þeirra er þú lægðir oss,
ára þeirra er vér máttum illt þola. (Sl. 90.14-15)
Með kærum kveðjum og blessunaróskum
Ragnar Gunnarsson framkvæmdastjóri