Aðalvalmynd
Dagskrá
06.02.2012 20:00 -
21:00
Fundur í Kristniboðsfélagi karla
07.02.2012 19:30 -
21:30
Sakkeus - kvikmyndasýning
08.02.2012 20:00 -
21:00
SÍK samkoma
09.02.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
15.02.2012 20:00 -
21:00
SÍK samkoma
24. mars 2010
Samkoma í kvöld
Kristniboðsfélag kvenna er með fjáröflunarsamkomu í kvöld kl. 20 í Kristniboðssalnum á Háaleitisbraut. Þar verður m.a. happdrætti. Allur ágóði rennur að sjálfsögðu óskiptur til kristniboðsins. Sr. Frank M. Halldórsson eru ræðumaður kvöldsins. Við hvetjum alla kristniboðsvini að fjölmenna og taka þátt í samkomunni.
Ragnar í Afríku
Eins og glöggir kristniboðsvinir hafa séð er Ragnar staddur í Afríku. Hann tók þátt í ráðstefnu kristniboðanna í Nairóbí og fór til Pókot með kristniboðunum, Fanneyju og Fjölni. Ragnar hefur skrifað fréttir frá Keníu á heimasíðuna okkar http://sik.is/ Hann er núna kominn til Eþíópíu þar sem hann mun hitta kristniboðana, Helgu Vilborgu og Kristján í Voitó. Við bendum fólki á að lesa pistlana hans Ragnars á heimasíðunni.
Sjálfboðaliðar
Kristniboðssambandið hefur fest kaup á nýjum húsakynnum í Austurveri, Háaleitisbraut 68. Flutningur er í undirbúningi. Á föstudaginn kl. 17 á að byrja að flytja bækur o.fl. úr geymslunni okkar hér í nýju geymsluna. Við óskum eftir sjálfboðaliðum til að hjálpa okkur. Ef þið komist ekki á föstudaginn verður tækifæri seinna til að hjálpa. En ef einhver er á lausu á föstudaginn kl. 17-19 er hann vinsamlegast beðinn að láta okkur vita. Við erum afar þakklát öllum sem geta hjálpað til við að bera kassa fyrir okkur!
Kristniboðsvinur fallinn frá
Sigríður Jónsdóttir úr Keflavík lést laugardaginn 20. mars. Sigríður var virk í kristniboðsfélaginu í Keflavík til fjölda ára og í Kristniboðsfélagi kvenna í Reykjavík. Hún var mikill kristniboðsvinur. Við biðjum Guð að hugga og blessa fjölskyldu hennar og við biðjum Guð að blessa minningu góðrar konu.
Aðalfundur
Aðalfundur SÍK verður haldinn laugardaginn 15. maí í Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut 58-60. Dagskrá er væntanleg innan tíðar. Minnum kristniboðsvinir á að taka daginn frá.
Til umhugsunar
Sonur minn, gefðu gaum að speki minni,
ljáðu eyra þitt hyggindum mínum
til þess að þú varðveitir mannvit
og varir þínar geymi þekkingu. (Orðskv. 5.1-2)
Með kærum kveðjum og blessunaróskum
Kristín Bjarnadóttir