Dagskrá

06.02.2012 20:00 - 21:00
Fundur í Kristniboðsfélagi karla

07.02.2012 19:30 - 21:30
Sakkeus - kvikmyndasýning

08.02.2012 20:00 - 21:00
SÍK samkoma

09.02.2012 16:00 - 18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna

15.02.2012 20:00 - 21:00
SÍK samkoma


Heim
Newsletter Item
CM_EDITION_OF
Kristniboðspósturinn

Kristniboðspósturinn

72. póstur, 24. febrúar 2010

 

Fjármálin

Mynd er að komast á fjárhagsuppgjör liðins árs. Aldrei hafa útgjöld okkar verið eins mikil og aldrei hafa tekjurnar heldur verið meiri. Upphaflega var gert ráð fyrir 72,5 milljónum en við það bættist kostnaður við neyðarhjálp í Keníu upp á um 8 milljónir. Eitthvað sparaðist á móti en heildartekjur ársins voru upp á 82,5 milljónir, þar af styrkur til þróunarverkefna frá ÞSSÍ og Utanríkisráðuneytinu upp á 5.750 þúsund og vegna neyðarhjálpar frá Utanríkisráðuneytinu upp á 6.500 þúsund. Er þetta einstaklega jákvæð niðurstaða á þessum tímum þar sem stjórnin hafði jafnvel reiknað með að þurfa að nýta varasjóð sambandsins. Ljóst er að tekjuafgangur verður og munaði að sjálfsögðu mikið um staka gjöf upp á 15 milljónir sem barst í upphafi ársins en án hennar hefði niðurstaðan orðið neikvæð.

Flutningar framundan

Þegar Kristniboðssambandið flutti skrifstofur sýnar hingað á Grensásveg 7 kom fljótt í ljós að ýmsum þótti það ókostur að við værum á annarri hæð. Stjórnin vildi þó á sínum tíma fara varlega í fjárfestingar og mun ódýrara var að kaupa húsnæði á 2. Hæð. Nú hefur það sýnt sig að Basarinn, nytjamarkaðurinn okkar, gengur vel og hefur skilað 3,5 milljón króna tekjum á ári. Því höfum við verið að líta í kringum okkur og kanna hvort unnt væri að flytja á betri stað. Eftir umræður, kynningar á samkomum og bæn um handleiðslu Guðs var stigið það skref í fyrir helgi að gera kauptilboð í húsnæði í Austurveri, við Háaleitisbraut 68, þar sem útibú Landsbankans var áður til húsa. Verð á atvinnuhúsnæði er afar lágt um þessar mundir og því ákveðið lag, ekki síst ef hægt er að kaupa án skuldsetningar.

Bankinn samþykkti kauptilboð okkar upp á 46 milljónir með fyrirvara um samþykki stjórnar bankans. Ásett söluverð var 52,5 milljónir og gert er ráð fyrir staðgreiðslu. Til að geta það mun SÍK fá að láni minningarsjóð Ástríðar Petersen sem er í eigu Kristniboðsfélags kvenna í Reykjavík upp á rúmar 16 milljónir. Góður kristniboðsvinur lætur af hendi 7 milljónir og nýverið fékk Kristniboðssambandið arf eftir Guðnýju Kristinsdóttur upp á rúmar 14 milljónir. Þar fyrir utan á SÍK fjármuni í varasjóði og rekstrarafgang liðins árs. Með þessu er þrengt nokkuð að lausafjárstöðu SÍK en þó ekki þannig að horfi til vandræða. 

Ekki verður flutt alveg strax en reiknað með að næstu vikur fari í undirbúning og flutning. Ætlunin er að vanda undirbúning og hugsa út í sem besta nýtingu á staðnum. Húsnæðið er á áberandi stað þegar komið er að Austurveri og ekið er inn á bílastæði Grensáskirkju. Það er mjög miðsvæðis í borginni og aðgengi gott, mun fleiri bílastæði en hér og ýmislegt annað jákvætt við þetta. Um er að ræða rúmlega 200 fm á jarðhæð, 56 fm geymslu í kjallara sem ekki er innangengt í en unnt að aka alveg upp að og loks um 40 fm á efri hæð með lyftu á milli. Þar er eldtraust skjalageymsla, kaffi- og mataraðstaða. Samtals eru þetta 310 fm.

Nú mega kristniboðsvinir vekja athygli á því að við höfum til leigu eða sölu húsnæðið okkar hér á Grensásvegi 7 sem hentar fyrir skrifstofur og starfsemi sem krefst ekki mikillar gestakomu. 

 

Bænastund á Austurvelli á miðvikudaginn kemur kl. 12:30

Kristniboðssambandið er aðili að samkirkjulegum bænastundum í Friðrikskapellu alla miðvikudaga kl. 12. Þar hefur nú verið komið saman í eitt og hálft ár og beðið fyrir ráðamönnum þjóðarinnar, framtíð íslensks þjóðfélags, þeim sem eiga í vanda og mörgu öðru. Þær eru öllum opnar og lesendur póstsins hvattir til að mæta. N.k. miðvikudag verður beðið stutt í Friðrikskapellu og síðan farið niður á Austurvöll þar sem ætlunin er að biðja og þeir sem það vilja og treysta sér til að krjúpa í bæn. Hefst stundin þar kl. 12:30. Með þessu vill hópurinn gera sig sýnilegri og biðja um blessun yfir land og þjóð og nágrannaþjóðir okkar.

Kristniboðsvika 28. febrúar til 7. mars

Árleg kristniboðsvika í Reykjavík verður að þessu sinni 28. febrúar til 7. mars. Samkomur verða í Kristniboðssalnum, húsi KFUM og KFUK við Holtaveg og í Lindakirkju. Dagskráin er komin á vefsíðu okkar, www.sik.is. Sérstök fræðslustund verður á mánudag kl. 16 í kristniboðssalnum. Við vekjum athygli á að Alþjóðabænadagur kvenna er í kristniboðsvikunni með samkomu í Digraneskirkju kl. 20, föstudaginn 5. mars. Einnig verður samkoma á Akureyri á laugardeginum, væntanlega kl. 17. Sérstakur gestur vikunnar er John Steinar Dahle, prestur í Noregi og erindreki Sat 7 sjónvarpsstöðvarinnar þar í landi.

 

Aðalfundur

Stjórn SÍK boðar hér með til aðalfundar laugardaginn 15. maí í Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut 58-60. Aðalfundarstörf hefjast kl. 10 en biblíulestur eða hugleiðing á undan. Nánari dagskrá verður kynnt síðar.

 

Kristniboðsfréttir

Blaðið er komið út og eiga áskrifendur að hafa fengið það í hendur. Frábært blað, margvíslegar fréttir af fjölbreyttu starfi og áhersla á mikilvægi kristniboðsins. Ritstjóri er Kristín Bjarnadóttir. Áskrift er ókeypis og hana má nú panta á vefsíðu okkar, www.sik.is.

 

Endurbætur á vefsíðunni www.sik.is

Þessar vikurnar er unnið að endurbótum á vefsíðunni okkar í því skyni að auðvelda fólki yfirsýn og eins með því að bæta inn nýju efni. Látið því breytingar ekki koma ykkur á óvart! SÍK er skráð fyrir vefnafninu www.mission.is en þau sem slá það inn eru leidd inn á enska útgáfu síðu okkar.

 

SÍK og þjóðkirkjan

Í framhaldi af umræðum á aðalfundi í fyrra hefur stjórn SÍK sett fram nokkur áhersluatriði í tengslum við stöðu og stefnu SÍK sem kristniboðssamtök innan kirkjunnar. Einstaklingar og kristniboðsfélög eru hvött til að kynna sér málið, ræða það og mæta á sérstakan umræðufund sem verður í Kristniboðssalnum í kvöld, miðvikudaginn 24. febrúar kl. 20 (að lokinni hugleiðingu). Einnig má koma athugasemdum bréfleiðis til stjórnarinnar. Lokaafgreiðsla þessa verður síðan á aðalfundi en áhersluatriðin má lesa á www.sik.is með því að velja Stefnumörkun 2010.

  

Bloggsíðurnar

Við minnum á skrif kristniboðanna á síður sínar og skrif sendifulltrúans, sr. Jakobs Á. Hjálmarssonar:

www.jakob.annall.is

www.fanneyogfjolnir.blog.is

www.helgavilborg.blog.is

   

Samkomur í Kristniboðssalnum á miðvikudögum kl. 20

24. febrúar

Kenning og vitnisburður. Tít. 2.1nn. Karl Jónas Gíslason hefur hugleiðingu. Í framhaldinu verða umræður um stefnu og stöðu SÍK innan þjóðkirkjunnar.

28. febrúar – 7. mars: Kristniboðsvika í Reykjavík. Sjá á www.sik.is.

Samkomudagskrá Salts kristins samfélags (sunnudaga kl. 17) er á www.saltks.is.

  

Brosið – hver ert þú?

Lítil stúlka var spurð hver hún væri.

„Ég er dóttir Péturs kennara,“ svaraði hún.

Móðir hennar sagði við hana að þetta væri ekki rétt, hún ætti að segja: „Ég er Jóna Pétursdóttir.“

Þegar svo presturinn ávarpaði hana í sunnudagaskólanum og spurði hvort hún væri ekki dóttir Péturs kennara, svarði hún:

„Það hélt ég, en mamma segir að það sé ekki rétt.“

 

Til umhugsunar

Hversu yndislegir eru á fjöllunum fætur fagnaðarboðans
sem friðinn kunngjörir,
gleðitíðindin flytur,
hjálpræðið boðar og segir við Síon:
„Guð þinn er sestur að völdum.“ (Jes. 52.7)

 

Með kærum kveðjum og blessunaróskum

Ragnar Gunnarsson framkvæmdastjóri 

 



sik.is

Ýmislegt efni

Tengdar síður

Samstarfsaðilar


Kristniboðssambandið | Háaleitisbraut 58-60 | 108 Reykjavík | Sími: 533 4900 | Netfang: sik@sik.is
© Kristniboðssambandið 2011