Aðalvalmynd
Dagskrá
06.02.2012 20:00 -
21:00
Fundur í Kristniboðsfélagi karla
07.02.2012 19:30 -
21:30
Sakkeus - kvikmyndasýning
08.02.2012 20:00 -
21:00
SÍK samkoma
09.02.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
15.02.2012 20:00 -
21:00
SÍK samkoma
Newsletter Item
CM_EDITION_OF
Kristniboðs´pósturinn, 62. póstur 19. ágúst 2009
Helga Vilborg Sigurjónsdóttir og Kristján Þór Sverrisson halda til Eþíópíu á morgun ásamt börnum sínum til að ljúka starfstímabili sínu í Voítódalnum á komandi vetri. Börnin verða tengd Bigngham Academy, sem er enskur skóli, en fá annars heimakennslu hjá mömmu sinni í Voító og fylgja að hluta íslensku námsefni. Fjölskyldan hefur átt góðan tíma hér á landi og við hvetjum kristniboðsvini til að biðja fyrir þeim áfram, en börnin eru Margrét Helga, Jóel, Dagbjartur Elí og Davíð Ómar. Þá má upplýsa áhugasama um að nothæfur ísskápur á að vera kominn á staðinn.
Maraþonið nálgast
Í dag er síðasti skráningardagur fyrir þau sem ætla að skrá sig á netinu en síðan má skrá sig með því að mæta í Laugardalshöll á föstudag. Skráning áheita fer fram á vefsíðu hlaupsins, www.marathon.is. Þrír hlauparar hafa bæst við í hóp þeirra sem hlaupa með Kristniboðssambandið sem góðgerðarfélag. Eru það Benedikt Oddsson, f. 1990 sem hleypur 10 km, Hrólfur Eyjólfsson f. 1999 sem hleypur 3 km og Sigurður Ragnarsson f. 1982 sem hleypur 21 km. Vel má vera að fleiri bætist í hópinn. Áhugasamir geta hvatt þá sem hlaupa fyrir góðgerðafélag með því að heita á þá ákveðna upphæð ljúki þeir hlaupinu og hvetjum við eindregið til þess. Einnig er fólk hvatt til að mæta einhves staðar á hlaupaleiðinni og hvetja hlauparana áfram til dáða.
.
3. september
Fimmtudaginn 3. september verður sérstakt kynningarkvöld, einkum ætlað ungu fólki en öllum opið, þar sem starf okkar verður kynnt og fólk hvatt til að leggja því lið með einum eða öðrum þætti. Meira um það í næsta pósti en gott að taka kvöldið frá núna. Látið einnig boðin ganga.
Bloggsíður
Kristniboðarnir halda úti bloggsíðum, en reyndar getur liðið langur tími á milli færslna þegar tölvusamband er ekkert eða lélegt. Helga Vilborg Sigurjónsdóttir er með www.helgavilborg.blog.is; Karl Jónas Gíslason og Ragnheiður Guðmundsdóttir eru með www.omorate.bloggar.is og Fanney Kristrún Ingadóttir og Jón Fjölnir Albertsson með www.fanneyogfjolnir.blog.is. Fanney og Helga Vilborg eru einnig á Facebook.
Haustmarkaðurinn 5. september
Árlegur haustmarkaður Kristniboðsambandsins verður í ár laugardaginn 5. september og stefnum við að því að halda hann hér á Grensásvegi 7. Allt matarkyns er vel þegið, svo sem kartöflur og grænmeti, ber, sultur, saft, kökur, brauð, bollur, marmelaði, kæfa og svo framegis.
Fundur framkvæmdastjóra norrænna heimatrúboðshreyfinga í næstu viku
Nordisk Indremisjonsråd, sem SÍK er aðili að, heldur fund framkvæmdastjóra hreyfinganna hér á landi í næstu viku. Fundað verður í Skálholti 25.-27. ágúst og síðustu nóttina gista fundarmenn hér hinum megin við götuna hjá Palla og Örnu í Reykjavík Bed and Breakfast.
Samkomur í Kristniboðssalnum á miðvikudögum kl. 20
19. ágúst
Verkamaður Guðs. 2. Tím 2.14 og áfram. Sr. Kjartan Jónsson talar
26. ágúst
Guð spyr, hvers vegna. Jer 44. Haraldur Jóhannsson talar.
Salt kristið samfélag er með samkomur í kristniboðssalnum á sunnudögum kl. 17.
Brosið: Á himnum
Jón og Gunna, bæði 85 ára, höfðu verið gift í 60 ár en létust í bílslysi. Síðustu 10 árin höfðu þau verið við sæmilega heilsu, ekki síst vegna þess að Gunna hafði verið svo dugleg í heilsufæðinu og fengið Jón sinn með sér út að ganga og í sund. Þau komu að Gullna hliðinu og Pétur fór með þau rakleiðis í lúxusíbúð með fallegu útsýni, frábæru eldhúsi og baðherbergi með nuddpottum. Meðan þau dásömuðu þetta spurði Jón hvað þetta myndi nú kosta.
„Þetta er allt ókeypis, þið eruð komin til himna,“ svaraði Pétur.
Því næst fóru þau að skoða golfvöllinn sem tók við af garðinum þeirra. Þar gætu þau spilað golf alla daga og golfvöllurinn uppfærðist á viku fresti til samræmis við besta golfvöll á jörðu á hverjum tíma.
„Eitthvað hlýtur nú það að kosta að spila hér,“ voru viðbrögð Jóns.
En Pétur svaraði: „Þið eruð á himnum, það kostar ekkert.“
Leiðin lá næst í mötuneytið sem minnti á matsal á fimm stjörnu hóteli og borðin svignuðu undan steikum og krásum.
„Og hvað kostar svo að borða hér?“ spurði Jón.
„Ertu ekki enn farinn að skilja þetta? Þið eruð á himnum, allt er ókeypis,“ svaraði Pétur.
„Nú já, en hvar er allur fitusnauði maturinn, trefja- og kólesterólpillurnar?“ spurði Jón gamli.
„Það er nú einmitt það besta,“ svaraði Pétur, „þú getur borðað eins mikið og þú vilt, allt sem þig langar í, þú fitnar ekki og verður aldrei veikur. Þú ert kominn til himna.“
Jón gamli fylltist skyndilega reiði, öskraði, hoppaði á hattinum sínum og lét öllum illum látum.
Pétur og Gunna reyndu að róa hann og spurðu hvað væri eiginlega að. Þá leit hann á Gunnu sína og sagði: „Þetta er allt þér að kenna, allt þér að kenna.“
Gunna svaraði: „Mér að kenna, hvað áttu við?“
Og Jón svaraði: „Ef þú hefðir ekki troðið í mig grænmetisbuffinu, trefjapillunum, múslíkökunum og sleppt öllum sætindum og rjóma, dregið mig út í göngutúra og í sund, fyrir utan allt hitt, hefði ég getað verið kominn hingað fyrir tíu árum!“
Bænarefni
- Kristniboðarnir okkar: Góð aðlögun Fanneyjar, Fjölnis og drengjanna, Daníels, Markúsar, Salómons og Davíðs, auk Kristínar Ingu í Keníu, Karl Jónas og Ragnheiður í Eþíópíu og Kristján og Helga Vilborg sem fara ásamt börnum sínum Margréti Helgu, Jóel, Dagbjarti Elí og Davíð Ómari út aftur á morgun.
- Starfsmannamál og starfsmenn heima fyrir og undirbúningur haustsins
- Maraþonhlauparar sem hlaupa með SÍK sem góðgerðarfélag, vernd og varðveisla og að hlaupið veki athygli á starfi okkar.
- Samkomur á miðvikudögum í Kristniboðssalnum, starf kristniboðsfélaganna á komandi vetri.
- Kynningarkvöld 3. september n.k. og haustmarkaðurinn 5. september
Til umhugsunar
Trúr er Guð sem hefur kallað ykkur til samfélags við son sinn Jesú Krist, Drottin vorn.
1. Kor. 1.9
Með kærum kveðjum og blessunaróskum
Ragnar Gunnarsson framkvæmdastjóri
Kristniboðspósturinn
62. póstur, 19. ágúst 2009
Til Eþíópíu á morgun