Aðalvalmynd
Dagskrá
06.02.2012 20:00 -
21:00
Fundur í Kristniboðsfélagi karla
07.02.2012 19:30 -
21:30
Sakkeus - kvikmyndasýning
08.02.2012 20:00 -
21:00
SÍK samkoma
09.02.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
15.02.2012 20:00 -
21:00
SÍK samkoma
60. póstur, 5. ágúst 2009
Helga Vilborg og Kristján á samkomu í kvöld
Kristniboðarnir okkar, Helga Vilborg Sigurjónsdóttir og Kristján Þór Sverrisson, sem verið hafa hér á landi í leyfi í sumar, halda aftur til starfa í Eþíópíu eftir tvær vikur, en í kvöld munu þau segja frá og sjá um efni á samkomunni í Kristniboðssalnum. Samkoman hefst kl. 20.
Komin á leiðarenda
Fanney og Fjölnir ásamt Kristínu Ingu og sonum sínum lentu í Nairobi aðfaranótt laugardagsins og hafa síðan þá verið að kynna sér borgina, staðinn og það sem framundan er í málanámi hjá þeim. Þau eru mjög ánægð með að vera komin til landsins.
3. september
Fimmtudaginn 3. september verður sérstakt kynningarkvöld, einkum ætlað ungu fólki en öllum opið, þar sem starf okkar verður kynnt og fólk hvatt til að leggja því lið með einum eða öðrum þætti. Meira um það síðar.
Samkomur í Kristniboðssalnum á miðvikudögum kl. 20
5. ágúst
Helga Vilborg og Kristján segja frá starfi sínu í Voító og sjá um samkomuna.
12. ágúst
Drottinn vísar veg. Jer. 42. Birna Gerður Jónsdóttir talar.
Salt kristið samfélag er með samkomur í kristniboðssalnum á sunnudögum kl. 17.
Reykjavíkurmaraþon
Árlegt Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka verður haldið 22. ágúst n.k. Þátttakendur geta skráð sig með tengingu við góðgerðafélag og geta þá áhugasamir heitið á hlauparana til þess góðgerðafélags. Þannig má velja Kristniboðssambandið og hvetja ættingja og vini til að heita á mann. Nú eru sex skráðir með Kristniboðssambandið sem góðgerðafélag og von á fleirum. Skráning og upplýsingar eru á www.marathon.is.
Brosið: Ssss
Sú saga er sögð af William Jennings Bryan (1860-1925), þekktum mælsku- og stjórnmálamanni, að hann hafi ungur að árum farið að heimsækja föður tilvonandi eiginkonu til þess að biðja um hönd hennar. Bryan var ákveðinn í því að slá um sig með því að vitna í Biblíuna og valdi Orðskviðina 18:22: „Sá sem eignast konu eignast gersemi
og hlýtur náðargjöf frá Drottni.“
Það hafði engin teljandi áhrif þegar faðirinn svaraði með tilvitnun í Pál: „Þannig
Bryan varð aldrei orðavant og svaraði um hæl: „Jú einmitt, en Páll var ókvæntur en Salómon átti um eiginkonur 700. Þess vegna vegna er ekki spurning að við hljótum að hlusta frekar á það sem Salómon segir um eiginkonur og hjónaband.
Bænarefni
- Kristniboðarnir okkar: Góð aðlögun Fanneyjar, Fjölnis og drengjanna auk Kristínar Ingu í Keníu, Karl Jónas og Ragnheiður í Eþíópíu og Kristján og Helga Vilborg sem fara ásamt börnum sínum út aftur 20. ágúst.
- Starfsmannamál og starfsmenn heima fyrir og undirbúningur haustsins
- Nýbúar á Íslandi og tækifæri til að boða þeim trúna.
- Útgáfumál, bókaútgáfan Salt ehf, Bjarmi og Kristniboðsfréttir.
- Kynningarkvöld 3. september n.k.
Til umhugsunar
Skapa í mér hreint hjarta, ó Guð,
og veit mér nýjan, stöðugan anda.
Sálmur 51:12
Með kærum kveðjum og blessunaróskum
Ragnar Gunnarsson framkvæmdastjóri