Aðalvalmynd
Dagskrá
06.02.2012 20:00 -
21:00
Fundur í Kristniboðsfélagi karla
07.02.2012 19:30 -
21:30
Sakkeus - kvikmyndasýning
08.02.2012 20:00 -
21:00
SÍK samkoma
09.02.2012 16:00 -
18:00
Fundur í Kristniboðsfélagi kvenna
15.02.2012 20:00 -
21:00
SÍK samkoma
Kristniboðspósturinn
55. póstur, 6. maí 2009
Breyttur afgreiðslutími
Basarinn og skrifstofa Kristniboðssambandsins verður í sumar, þ.e. maíbyrjun til ágústloka opinn kl. 10-16 og lokað alla laugardaga. Ef einhver ykkar, eða annar sem þið þekkið, vill færa okkur varning til sölu á nytjamarkaðinum, en kemst ekki á þessum tíma, hvetjum við ykkur til að hafa samband og við reynum að leysa það, t.d. með því að mæla okkur mót eða hinkra ef það hentar.
Fjáröflunarsamkoma í kvöld
Þátttaka í leiksýningu á Listahátið: Orbis Rerræ-Ora
Reykjavíkurmaraþon 2009
Eins og undanfarin ár verður Reykjavíkurmaraþon haldið í ágúst, nánar tiltekið þann 22. Í hlaupinu verður hægt að safna áheitum eins og undanfarin ár og er von okkar sú að þeim fjölgi til muna sem hlaupa fyrir Kristniboðssambandið. Skráning hefst innan skamms en nú þegar er hægt að fara að viðra sig og hlaupa til að ná sem bestum árangri í ágúst.
Aðalfundur 16. maí
Fundur hefst með biblíulestri sr. Helga Hróbjartssonar kl. 9 og aðalfundarstörf hefjast kl. 10. Nánari dagskrá í næsta pósti.
Heim frá Eþíópíu
Ragnheiður Guðmundsdóttir kom heim frá Eþíópíu fyrir helgi til læknisrannsókna vegna þráláts höfuðverkjar sem læknum í Eþíópíu tókst ekki að finna skýringar á. Hún er í rannsóknum hér og snýr til baka 12. júní. Ekkert hefur komið í ljós sem bendir til þess að um alvarlegt mein sé að ræða.
Samkomur í Kristniboðssalnum á miðvikudögum kl. 20
6. maí
Fjáröflunarsamkoma Kristniboðsflokks KFUK. Sjá hér að ofan.13. maí Með ævarandi elsku... Jer. 31. Bjarni Gíslason talar. Fréttir frá Eþíópíu.
Salt kristið samfélag er með samkomur í kristniboðssalnum á sunnudögum kl. 17.
Sat 7 beinir sjónum að stöðu kvenna í Mið-Austurlöndum.
Nýleg rannsókn sýnir að 97% heimila í Írak eru nú með gervihnattasjónvarp. Um 300 sjónvarpsstöðvar standa þeim til boða og er Sat 7 ein þeirra.
Brosið: Endurbætur á býlinu
Ungur bóndi keypti sér yfirgefið býli og ákvað vor eitt að endurreisa það og gera að búsældarlegum bóndabæ. Allt í kring var á kafi í illgresi, íbúðarhúsið hálfónýtt, útihúsin að hruni komin og girðingarnar meira og minna ónýtar. Fyrsta daginn kom presturinn í heimsókn til þess að blessa vinnu bóndans: „Mættuð þið Guð vinna saman í að láta drauma þína um býlið rætast.“
Nokkrum mánuðum síðar kemur presturinn aftur við til að heimsækja bóndann. En nú er allt annað uppi á teningnum? Staður en nánast óþekkjanlegur, íbúðarhúsið endurgert að utan og innan og eins og nýtt, útihúsin stöndug og nýmáluð og allt um kring eru bæði kýr og kindur á beit í grasigrónum hlíðum, allt vel girt, og kartöflur, rófur og annað grænmeti í bakgarðinum. „Stórkostslegt,“ segir prestur, „sjáðu hverju þið Guð hafið komið til leiðar í sameiningu!“
„Já, séra minn,“ segir bóndinn, „en gleymdu því samt ekki hvernig staðurinn leit út á meðan Guð sá um hann einn.“
Bænarefni
- Kristniboðarnir og kristniboðaefni
- Fjármál SÍK og auknar skuldbindingar vegna gengisbreytinga
- Aðalfundur Kristniboðssambandsins 16. maí n.k.
- Starfsmannamál – en stjórnin er að skoða framtíðina.
Til umhugsunar
Lát mig heyra miskunn þína að morgni dagsþví að þér treysti ég.
Vísa mér veginn sem ég skal halda
því að til þín hef ég sál mína. Sálm 143:8
Með kærum kveðjum og blessunaróskum
Ragnar Gunnarsson framkvæmdastjóri